Þáttur 63 - Andrea Magnús um lífið, draumana og lærdóminn -
Þátturinn er í boði:
Iceherbs - www.iceherbs.is
Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
Dominos - www.dominos.is -
Losti.is - www.losti.is
Hönnuðurinn og Trendnet bloggarinn Andrea Magnús kom loksins til mín í stúdíó-ið! Andrea er án efa ein yndislegasta manneskja sem ég þekki, hún hefur alltaf ráð og segir einhvernvegin alltaf það rétta og hef ég tekið mér margt til fyrirmyndar á þeim tíma sem ég hef þekkt hana. Við fáum að kynnast henni enn betur og grafa aðeins ofan í lífið hennar. Allt frá fjölskyldulífi, fyrirtækjareksturinn hennar og tilfinningalíf. Við ræðum meðal annars um manifest draumana okkar og hvernig við látum verða að þeim. Hún hefur svo magnaða manneskju að geyma og var yndislegt að fá að hlusta á hana og sýn hennar á lífið eins og það leggur sig. Andrea rekur búðina www.andrea.is á Norðurbakka í Hafnarfirði ásamt því að vera bloggari á www.trendnet.is og er aktív á Instagram með rúmlega tólf þúsund fylgjendur.
Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus stúdíó-inu í Podcaststöðinni -
Fleiri þættir af Helgaspjallið
- 230 - DVD, VHS og tilkynning1. október 2026
- 229 - Markmið, manifest & mistök15. september 2026
- 228 - Gildi og ááán djóks hversu mikilvæg þau eru8. september 2026
- 227 - Eftir nei-ið & millennial crisis!1. september 2026
- 226 - Tveir tímar af sólskíni með Jóel Þór - og Helga & Heiðdísi25. ágúst 2026
- 225 - "Ég set þær kröfur" mörk á okkur, Lindsay Clancy málið og áhrif skammar á samfélagið18. ágúst 2026
