25. Albína Thordarson - Sigvaldi Thordarson, arkitekt
Gestur þáttarins er Albína Thordarson arkitekt. Hún var formaður Arkitektafélags Íslands 2005–2007 og hlaut heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands árið 2025. Meðal verka hennar eru leikskólar, orlofshús og Stjórnsýsluhúsið á Ísafirði, sem hún teiknaði með systur sinni, Guðfinnu Thordarson.
Albína er dóttir Sigvalda Thordarson arkitekts (1911–1964), sem teiknaði 200–300 hús á rúmlega tveimur áratugum. Nýlega kom út bókin Sigvaldi Thordarson arkitekt eftir Albínu og Pétur H. Ármannsson hjá Hinu íslenska bókmenntafélagi.
Óskar Örn Arnórsson og Einar Hlér Einarsson ræða við Albínu um bókina, ævi Sigvalda og mörg verka hans. Þau ræða líka Sigvaldalitina, sem setja svip á hús hans.
Fleiri þættir af HLAÐLIST.
- 28. Gagarín - Sögur í rými16. nóvember 2026
- 27. Hjörtur Sigurðsson - Gervigreind á teikniborðinu9. nóvember 2026
- 26. Ólöf og Atli - Borgarlínan2. nóvember 2026
- 24. Henny Hafsteins og Sigga Maack - Teiknað af konum19. október 2026
- 23. Guðrún Harðardóttir - Íðorð í arkitektúr12. október 2026
- 22. Roger Mullin - Prototypes for a Landscape8. október 2026






