Síðasta lag fyrir myrkur - Þormóður Torfason: Dauðamaður og dáður sagnaritari
Hjalti Snær Ægisson bókmenntafræðingur leiðir okkur inn í kvöldið með bókum, sögum, sagnfræði og tónlist í bókmenntahlaðvarpi Bókasafns Hafnarfjarðar, einn eða með góðum gestum. Sestu í uppáhaldsstólinn þinn, helltu upp á kaffi og komdu með - en bókin er Þormóður Torfason: Dauðamaður og dáður sagnaritari eftir Bergsveinn Birgisson.
Ungur Íslendingur er sendur til að safna öllu sem hann kemst yfir á Íslandi af gömlum handritum og sögum og fara með til kóngsins í Kaupmannahöfn. Þetta er upphaf óvenjulegrar og spennandi sögu um ástríðu og forneskju, morð og skipbrot. En líka sagan af því hvernig vitneskja okkar og fróðleikur um víkingatímann varðveittist – og mátti oft litlu muna.
Sagnaritarinn Þormóður Torfason fæddist árið 1636. Hann naut m.a. handleiðslu Hallgríms Péturssonar skálds, heillaðist ungur af fornum fræðum, varð lagsbróðir og vinur Árna Magnússonar og dvaldi við skriftir í Kristjánsborgarhöll í skjóli Danakonungs. Síðar settist hann að í Noregi þar sem hann varð einn afkastamesti sagnaritari síns tíma – en var líka dæmdur til dauða fyrir að verða manni að bana.
Fleiri þættir af Hlaðvarp Bókasafns Hafnarfjarðar
- 1000 speglar - Hlaðvarp um Nabokov | 8. þáttur :Örvænting5. febrúar 2024
- 1000 speglar - Hlaðvarp um Nabokov | 7. þáttur : Elsku Margot12. desember 2023
- 1000 speglar - Hlaðvarp um Nabokov | 6. þáttur : Hetjudáð27. september 2023
- Síðasta lag fyrir myrkur -Blá12. maí 2023
- 1000 speglar - Hlaðvarp um Nabokov | 5. þáttur : Augað5. maí 2023
- Síðasta lag fyrir myrkur - Farþeginn17. mars 2023






