Breytt landslag á prentmarkaðinum með Guðmundi R. Guðmundssyni eiganda Prentmets Odda
Guðmundur Ragnar Guðmundsson á og rekur prentsmiðjuna Prentmet Odda ásamt eiginkonu sinni Ingibjörgu Steinunni Ingjaldsdóttur. Þau hjónin hafa byggt upp fyrirtækið sem býður upp á fjölbreytta prentun og reka útibú á Selfossi og á Akureyri. Guðmundur segir mikil tækifæri liggja í umbúðaprentun og segir neytendur meðvitaða um umbúðir. Þá telur hann að bókaprentun muni ekki snúa aftur til Íslands í því formi sem hún var en segir tækifærin liggja í endurútgáfu í smærra upplagi. Skemmtilegt spjall um prentbransann á Íslandi í dag og hvernig það er að reka fyrirtæki á þeim vettvangi.
Fleiri þættir af Hlaðvarp Iðunnar
- Lilja Diljá Ómarsdóttir - nýsveinn í vélvirkjun12. febrúar 2026
- Hlaðvarp Iðunnar - Serious Play Þitt sanna sjálf17. desember 2025
- Luiz Lobo og Helen Gray ræddum um tækifæri fyrirtækja sem taka þátt í alþjóðlegu samstarfi.17. desember 2025
- Öflugur verkstjóri gerir góðan vinnustað enn betri2. október 2025
- Hlaðvarp Iðunnar - Stefnumót um símenntun7. maí 2025
- Hlaðvarp Iðunnar – Ævintýri í Evrópu með Erasmus+7. maí 2025


