Mahler 8 - Rætt við Svanhildi Óskarsdóttur

· Tónlist

Undir lok maí, nánar tiltekið 29. og 30. maí, flytur Sinfóníuhljómsveit Íslands áttundu sinfóníu Gustavs Mahler en þetta verður í fyrsta sinn sem þetta stórvirki verður flutt á Íslandi. Hljómsveitin verður með stærsta móti, myndarlegur kór á sviðinu ásamt barnakór og einsöngvararnir verða átta talsins. Það er Eva Ollikainen, aðalhljómsveitarstjóri og listrænn stjórnandi SÍ, sem stjórnar flutningi en tónleikarnir eru lokatónleikar hennar í því hlutverki. Til að hita upp fyrir þessa stórtónleika tökum við Svanhildi Óskarsdóttur tali en hún mun segja gestum frá á sérstakri tónleikakynningu sem fer fram kl. 18 þann 29. maí í Norðurljósum. Það er Vinafélag SÍ sem stendur fyrir kynningunni. Hér í Hljómkviðunni er það Guðni Tómasson sem ræðir við Svanhildi um verkið. Missið ekki af Mahler 8 undir lok maí hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands. Seinni tónleikarnir eru hluti af Listahátíð í Reykjavík sem hefst þann daginn.

Hljómkviðan – Hlaðvarp Sinfóníuhljómsveitar Íslands

Úr hlaðvarpinu

Hljómkviðan – Hlaðvarp Sinfóníuhljómsveitar Íslands

Sinfóníuhljómsveit Íslands | Iceland Symphony Orchestra

Allir þættir

Fleiri þættir af Hljómkviðan – Hlaðvarp Sinfóníuhljómsveitar Íslands