Smásögur heimsins: Þegar ég var Pila gamla, dauð en í blóma lífsins
Undanfarin fimm ár hafa þrír kennarar á Hugvísindasviði, þau Rúnar Helgi Vignisson, Kristín Guðrún Jónsdóttir og Jón Karl Helgason, ritstýrt ritröðinni Smásögur heimsins. Fimmta og síðasta bindi ritraðarinnar er nú komið út og er það helgað smásögum frá Evrópu, en áður hafa komið út smásögur Norður-Ameríku, Afríku, Rómönsku Ameríku og Asíu og Eyjaálfu. Af þessu tilefni hefur Hugvarp fengið ritstjórana til að velja sér smásögu úr bókunum til upplestrar fyrir ykkur kæru hlustendur. Það er Jón Karl Helgason, prófessor við Íslensku og menningardeild Háskóla Íslands sem ríður á vaðið og les sögu sem hann þýddi sjálfur og birtist í Evrópuhefti ritraðarinnar. Sagan, sem kom fyrst út árið 2009 og er eftir króatíska rithöfundinn Zoran Malkoč, heitir „Þegar ég var Pila gamla, dauð en í blóma lífsins“
Fleiri þættir af Hugvarp - hlaðvarp Hugvísindasviðs
- Heiðursdoktorsathöfn Péturs Gunnarssonar5. febrúar 2026
- Sigríður Þorgeirsdóttir og Finnur Dellsén fjalla um Helenu Longino25. september 2025
- Þorvarður Árnason um bókina Víðerni – verndun hins villta í náttúru Íslands16. júní 2025
- Sögulegt mann- og bæjatal21. mars 2025
- Norður af Sólu. Greinasafn um Sjón20. febrúar 2025
- Sofiya Zahova, nýr forstöðumaður Vigdísarstofnunar6. janúar 2025




