Aftökur og dauðadómar á Íslandi
Nýverið var opnuð kortasjá um aftökur á Íslandi á slóðinni dhd.hi.is. Kortasjáin er afrakstur verkefnisins Dysjar hinna dæmdu en markmið þess er að leita upplýsinga um þá einstaklinga sem teknir voru af lífi hérlendis tímabilið 1550–1830. Kortasjáin sýnir nöfn þeirra 248 einstaklinga sem þá voru dæmdir til dauða en einnig heimabæi þeirra, aftökustaði, kyn, aldur, brot og dóma. Við ræddum við þrjá aðstandendur verkefnisins, þau Sigrúnu Hannesdóttur, Ómar Val Jónasson og Steinunni Kristjánsdóttur.
Fleiri þættir af Hugvarp - hlaðvarp Hugvísindasviðs
- Heiðursdoktorsathöfn Péturs Gunnarssonar5. febrúar 2026
- Sigríður Þorgeirsdóttir og Finnur Dellsén fjalla um Helenu Longino25. september 2025
- Þorvarður Árnason um bókina Víðerni – verndun hins villta í náttúru Íslands16. júní 2025
- Sögulegt mann- og bæjatal21. mars 2025
- Norður af Sólu. Greinasafn um Sjón20. febrúar 2025
- Sofiya Zahova, nýr forstöðumaður Vigdísarstofnunar6. janúar 2025




