Helgi Þorláksson og Guðmundur Jónsson um bókina Líftaug landsins
Út er komið ritverkið Líftaug landsins. Saga íslenskrar utanlandsverslunar 900-2010. Verkið er í tveimur bindum, alls um 1000 síður. Þar er í fyrsta sinn sögð heildarsaga íslenskrar utanlandsverslunar frá landnámstíð til okkar daga. Fjallað er um framandi kaupmenn og fátæka landsmenn, harðan fisk og mjúka ull, mjöl og öl, brennivín og bjór, við og vax, lýsi og smjör, freðfisk og ál, nauðsynjar og neysluvenjur og ótalmargt fleira. Höfundar eru sex sagnfræðingar við Háskóla Íslands, þau Anna Agnarsdóttir, Gísli Gunnarsson, Guðmundur Jónsson, Halldór Bjarnason (d. 2010), Helgi Skúli Kjartansson og Helgi Þorláksson. Ritstjóri er Sumarliði R. Ísleifsson.
Fleiri þættir af Hugvarp - hlaðvarp Hugvísindasviðs
- Heiðursdoktorsathöfn Péturs Gunnarssonar5. febrúar 2026
- Sigríður Þorgeirsdóttir og Finnur Dellsén fjalla um Helenu Longino25. september 2025
- Þorvarður Árnason um bókina Víðerni – verndun hins villta í náttúru Íslands16. júní 2025
- Sögulegt mann- og bæjatal21. mars 2025
- Norður af Sólu. Greinasafn um Sjón20. febrúar 2025
- Sofiya Zahova, nýr forstöðumaður Vigdísarstofnunar6. janúar 2025




