189 Þáttur: Lindsay Clancy: Inn í huga móður – Clancy málið í heild sinni
Lindsay Clancy var 32 ára hjúkrunarfræðingur og þriggja barna móðir frá Massachusetts þegar hún, þann 24. janúar 2023, myrti börnin sín þrjú: Coru, Dawson og Callan Clancy.
Lindsay neitar ekki að hafa orðið börnum sínum að bana.
Spurningin sem kviðdómurinn þarf að svara er önnur: Var Lindsay Clancy sakhæf þegar hún gerði þetta?
Vörn hennar heldur því fram að svarið sé nei.
Undanfarnar vikur hefur kviðdómurinn fengið að heyra um geðheilsu Lindsay, fæðingarþunglyndi, gríðarlegt svefnleysi, sjúkrahúsinnlögn, fjölda geðlyfja — og meint geðrof sem vörnin segir að hafi endað með ólýsanlegum harmleik.
Saksóknarar segja allt aðra sögu.
Og í þessum þætti ætlum við að fara alla leið aftur til upphafsins og reyna að skilja hvernig Lindsay Clancy fór frá því að vera eiginkona, hjúkrunarfræðingur og móðir þriggja barna — yfir í það að standa ákærð fyrir morðin á þeim öllum.
Má bjóða þér að hlusta á fleiri Illverk þætti?
Þú getur skráð þig í áskrift & með því fengið aðgang að yfir 300+ aukaþáttum, nýja í hverjum mánuði & þessa fríu án auglýsinga & í fullri lengd.
Áskriftin kostar 1150,- kr á mánuði & henni fylgir engin binding.
Skráðu þig í illverk áskrift inná www.illverk.is
Hafðu samband:
• illverk@illverk.is
• #illverkpodcast
sᴀᴍғᴇʟᴀɢsᴍɪᴅʟᴀʀ:
• ɪɴsᴛᴀɢʀᴀᴍ | ɪʟʟᴠᴇʀᴋᴘᴏᴅᴄᴀsᴛ
• ʟᴏᴋᴀᴅᴜʀ ғᴀᴄᴇʙᴏᴏᴋ ʜᴏᴘᴜʀ
ʜʟᴀᴅᴠᴀʀᴘɪᴅ sᴇᴍ ʜᴇғᴜʀ sᴠᴀʟᴀᴅ ғᴏʀᴠɪᴛɴɪ ɪsʟᴇɴᴅɪɴɢᴀ ᴜᴍ sᴀɴɴsᴏɢᴜʟᴇɢ sᴀᴋᴀᴍᴀʟ sɪᴅᴀɴ 𝟸𝟶𝟷𝟿 ®
Fleiri þættir af ILLVERK Podcast
- 196 Þáttur: Tara Grinstead "The Missing Beauty Queen"18. nóvember 2026
- 196 Þáttur: Hvarf Michelle Parker "Peoples Court TV"4. nóvember 2026
- 195 Þáttur: Maria Marten "The Red Barn Murder"21. október 2026
- 194 Þáttur: Morðið á Pierre Émile L'Angelier - Forboðin ástarbréf 💌7. október 2026
- 193 Þáttur: Brandi Worley: Mothers Who Kill "Spouse Revenge Filicide"23. september 2026
- 192 Þáttur: Andrea Yates: Mothers Who Kill "Altruistic Filicide"9. september 2026
