2. Ítalía II - Væntingar og veruleiki. Af hverju heillast ferðalangar af Ítalíu?
Ítalía heillar - hlaðvarp fyrir ferðalanga um Ítalíu
Í þessum þætti er farið yfir það sem gott er fyrir þig að vita áður en lagt er af stað til Ítalíu. Fjallað er um muninn á væntingum og veruleika og hvernig þú getur notið landsins betur með smá undirbúningi og réttu hugarfari.
Þú kynnist ítalskri matarmenningu, þar sem einfaldleiki og gæðahráefni ráða ríkjum, og kaffivenjum sem geta komið ferðamönnum á óvart. Einnig er rætt um akstur á Ítalíu, ZTL-umferðarsvæði, bílaleigur og hvers vegna lestir eru oft betri kostur en bíll. Sérstök áhersla er lögð á að muna að stimpla pappírsmiða í svæðislestir og fylgjast með mögulegum verkföllum.
Þátturinn fjallar einnig um ítalskt tungumál, fjölbreyttar mállýskur, list, hönnun og hinn afslappaða lífsstíl sem einkennir landið. Farið er yfir nokkur atriði sem koma mörgum á óvart, svo sem þjónustugjöld á veitingastöðum, klæðaburð í kirkjum og mismunandi salernisaðstöðu.
Með opnum huga, smá þolinmæði og góðum undirbúningi verður ferðin bæði auðveldari og eftirminnilegri.
******
ZTL – Zona a traffico limitato. Afmörkuð svæði í borgum og bæjum þar sem bílar þurfa sérstakt leyfi til að aka. Miðsvæðis.
Sciopero – scioperi: Verkfall – verkföll.
scioperi.mit.gov.it – Upplýsingasíða hins opinbera á Ítalíu varðandi verkföll
Dialetto – mállýska
Buongiorno – Góðan dag
Grazie – takk
Riposo – ítalska útgáfan af “siesta”
Coperto - þjónustugjald fyrir brauð og borðþjónustu.
Acqua naturale – Venjulegt vatn
Acqua frizzante – Sódavatn
Öryggisnúmer
112 – Almenna neyðarnúmerið. Ítalska útgáfan af 112 á Íslandi.
113 – Lögreglan
115 – Slökkviliðið.
116 – Vegaaðstoð. Ítalska útgáfan af FÍB, kölluð ACI.
118 – Neyðartilfelli tengd heilsu, sjúkrabílar, skyndihjálp.
Va bene – Allt í lagi
Questura - Lögreglustöð
Umsjón: Margrét Gunnarsdóttir upplýsingafræðingur
Vefsíða: www.italiaheillar.is
Fleiri þættir af Ítalía heillar - hlaðvarp fyrir ferðalanga um Ítalíu
- 10. Með lest um Ítalíu – Buon viaggio!9. september 2026
- 9. Á fjórum hjólum um Ítalíu – allt sem þú þarft að vita um bílaleigu2. september 2026
- 8. Róm III - Skemmtileg torg, götur, söfn og frægir staðir í Róm. Hvernig forðastu langar biðraðir?26. ágúst 2026
- 7. Róm II - “Ekkert stress”– samgöngur, hverfi og góð ráð19. ágúst 2026
- 7. Róm II - “Ekkert stress”– samgöngur, hverfi og vasaþjófatrikk19. ágúst 2026
- 6. Róm I - Marglaga, mótsagnakennd og lifandi borg12. ágúst 2026
