1. Ítalía I - Ertu að skipuleggja ferð til Ítalíu?
Ítalía heillar – hlaðvarp fyrir ferðalanga um Ítalíu.
Í þessum fyrsta þætti Ítalía heillar segir Magga frá því hvernig áhugi hennar á Ítalíu kviknaði þegar hún fór sautján ára gömul sem skiptinemi til landsins. Hún deilir eigin reynslu með þér og gefur hagnýt ráð fyrir þig sem ert mögulega að skipuleggja Ítalíuferð.
Fjallað er um hvernig velja megi áfangastaði, kosti þess að ferðast utan mesta sumarhitans og hvers vegna „slow travel“ getur veitt þér meiri upplifun. Einnig er þér bent á að forðast akstur í stórborgum, varast ZTL-svæði og gefa þér tíma til að kynnast minni bæjum og héruðum.
Þú færð að heyra um fjölbreytileika Ítalíu, sögu hennar, tuttugu héruð, San Marínó og Vatíkanið, auk þess sem rætt er um ítalska matarmenningu, ást þjóðarinnar á fegurð, bella figura og la dolce vita.
******
ZTL – Zona a traffico limitato. Afmörkuð svæði í borgum og bæjum þar sem bílar þurfa sérstakt leyfi til að aka. Miðsvæðis.
Slow travel - Hæglætisferðamennska
Il bel paese – Hið fallega land
Una bella figura – Falleg ásýnd
La dolce vita – Hið ljúfa líf
Si puó fare – Þetta er hægt / Þetta er mögulegt
Hlaðvarpið er í boði á Youtube með texta:
https://youtu.be/u27LkWpKdvQ?si=3NtSiIMbwZWQ-YiN
Umsjón: Margrét Gunnarsdóttir upplýsingafræðingur
Vefsíða: www.italiaheillar.is
Fleiri þættir af Ítalía heillar - hlaðvarp fyrir ferðalanga um Ítalíu
- 10. Með lest um Ítalíu – Buon viaggio!9. september 2026
- 9. Á fjórum hjólum um Ítalíu – allt sem þú þarft að vita um bílaleigu2. september 2026
- 8. Róm III - Skemmtileg torg, götur, söfn og frægir staðir í Róm. Hvernig forðastu langar biðraðir?26. ágúst 2026
- 7. Róm II - “Ekkert stress”– samgöngur, hverfi og góð ráð19. ágúst 2026
- 7. Róm II - “Ekkert stress”– samgöngur, hverfi og vasaþjófatrikk19. ágúst 2026
- 6. Róm I - Marglaga, mótsagnakennd og lifandi borg12. ágúst 2026
