3. Ítalía III – Þekkirðu götubrellur vasaþjófanna?

Hér færðu að kynnast helstu mistökum sem ferðamenn gera á Ítalíu og hvernig þú getur forðast þau til að njóta ferðarinnar betur.
Nokkrar óvæntar reglur geta komið þér á óvart. Til dæmis  geturðu fengið háa sekt ef þú borðar hjá frægum minnismerkjum, dýfir fótum í gosbrunna eða gengur í óviðeigandi skóm á gönguleiðum Cinque Terre. Einnig er mikilvægt að bera alltaf vegabréf eða önnur gild skilríki á sér.
Þátturinn varar við algengum ferðamannabrellum, svo sem „ókeypis“ armböndum, undirskriftasvindli og vasaþjófum. Einnig færðu að heyra um ýmis konar falinn kostnað sem margir gera sér ekki grein fyrir og hagnýt ferðaráð.
****
Questura – lögreglustöð
Zanzare – moskítóflugur
Eh, pazienza! – Svona er lífið (pazienza = þolinmæði)
Coperto / pane e coperto. Þjónusta til borðs / brauð og þjónusta til borðs. 
Servizio incluso -  þjónusta innifalin
Bancomat – hraðbanki
Tassa di soggiorno – ferðamannaskattur
Il conto, per favore – Reikninginn, takk
Ferragosto – 15. Ágúst
Chiuso per ferie – lokað vegna sumarleyfa
Climatizzato – loftkæling
Riposo – hvíldartími
Gelato – ís
La dolce vita – hið ljúfa líf

Umsjón: Margrét Gunnarsdóttir upplýsingafræðingur
Vefsíða: www.italiaheillar.is

Fleiri þættir af Ítalía heillar - hlaðvarp fyrir ferðalanga um Ítalíu