Aron Jóhanns fer á HM í Brasilíu 2014
Aron Jóhannsson varð fyrstur Íslendinga til að spila á heimsmeistaramóti í knattspyrnu. Það gerðist 2014 þegar mótið var haldið í Brasilíu. Aron fæddist í Bandaríkjunum 1990 þegar foreldrar hans voru þar í námi. Það olli nokkru fjaðrafoki að hann skyldi velja að spila fyrir bandaríska landsliðið sumarið 2013. Í þessum þætti rifjum við upp ótrúlegt ævintýri um hvernig strákur úr Grafarvogi, sem þráði að verða atvinnumaður í knattspyrnu, komst á samning í Danmörku og sló þar í gegn vorið 2012. Jürgen Klinsmann, landsliðsþjálfari Bandaríkjanna, hafði þá reglulega samband við hann til að fá hann liðið sitt. Í þessum þætti verður öll sagan sögð.
Fleiri þættir af Íþróttavarp RÚV
- Góð íþrótt-Gulli betri: Jón Þór Hauksson rekinn frá Stjörnunni24. ágúst 2026
- Sportrásin: HM umræða nördanna15. júní 2026
- Góð Íþrótt-Gulli Betri: Pétur Guðmunds í LA Lakers22. mars 2026
- Góð Íþrótt-Gulli Betri: Eygló Fanndal1. mars 2026
- Góð íþrótt Gulli betri: Fjórar Vetrarólympíuleika sögur15. febrúar 2026
- Góð íþrótt-Gulli Betri: Super Bowl 20268. febrúar 2026