Japp um útlit, fegurðarstaðla og allt sem við gerum til að líta aðeins betur út. Við rifjum upp hinn stórkostlega klikkaða raunveruleikaþátt The Swan, skoðum fegurðartrend í gegnum tíðina og veltum fyrir okkur hversu langt við erum tilbúin að ganga í leitinni að „fullkomna“ útlitinu.
Auglýsingar sem við munum ennþá, slagorð sem sitja föst í hausnum og markaðsbrellur sem virka aðeins of vel. Af hverju munum við sumt í áratugi og hvað fær okkur eiginlega til að kaupa?
Í þessum þætti jöppum við um allt sem tengist afmælum 🎂 Afmælishefðir, afmælisstress, bestu og verstu afmælin, gjafir, veislur og allt sem fylgir því að eiga fæðingardag🎈
Hvenær verða peningar ókeypis og hver er raunverulegur máttur ókeypis heimsendingar? Sokkinn skvísukostnaður og skvísa rað. Allt þetta og meira til í nýjasta Jappinu!