49.þáttur: Ólafur Haukur Símonarson
Ólafur Haukur er einn ástsælasti listamaður þjóðarinnar. Hann hefur skrifað smásögur og skáldsögur í áratugi og innsýn hans í íslenskan veruleik er einstök og það skilar sér í glettnum sem alvarlegum frásögnum. Það er ljóst að honum þykir vænt um þessa jörð. Sigurganga Ólafs í leikhúsinu er einstök og tugþúsundir Íslendinga sáu leiksýningar á borð við Hafið, Þrek og tár og Gauragang. Sú síðastnefnda er ennþá sett upp á nær hverju einasta ári einhvers staðar á landinu. Lög og textar Ólafs eru einnig í miklu uppáhaldi hjá landsmönnum og nægir þar að plötur eins og Eniga Meniga og Fólkið í blokkinni sem dæmi. Svo samdi hann auðvitað hina fallegu texta; Vetrarsól og Þitt fyrsta bros; við lög Gunnars Þórðarsonar.