116. Baldvin Þormóðsson
Baldvin Þormóðsson festi nýlega kaup á Íslensku auglýsingastofunni ásamt föður sínum Þormóði Jónssyni og fer þar með hlutverk Hugmyndastjóra.
Feðgarnir hafa víðtæka reynslu úr heimi auglýsinga, Þormóður átti og rak auglýsingastofuna Fíton um árabil en þar steig Baldvin einmitt sín fyrstu skref í bransanum. Þaðan lá leið hans til Bretlands þar sem hann stundaði BA-nám í auglýsingagerð við London College of Communication. Síðastliðin tvö ár hefur Baldvin starfað í Kaupmannahöfn hjá dönsku auglýsingastofunni THANK YOU þar sem hann vann meðal annars fyrir alþjóðleg vörumerki á borð við Carlsberg, Ferrari og Royal Copenhagen.
Í þættinum ræðir Baldvin breytt landslag auglýsingamarkaðarins og framtíðarsýn hans fyrir Íslensku auglýsingastofuna.
Fleiri þættir af Jóns
- Ólöf Kristjánsdóttir. Chief Marketing Officer, Taktikal2. nóvember 2025
- Agnar Freyr Gunnarsson, Birtingahúsinu19. september 2025
- Heiða Halldórsdóttir framkvæmdastjóri sölu, þjónustu og markaðsmála hjá Orkusölunni21. ágúst 2025
- Davíð Goði12. ágúst 2025
- Bjarki í Reykjavik Foto29. júlí 2025
- Hreiðar Marínósson21. júlí 2025



