#32 Kerfisbundið ofbeldi gegn konum og útlendingum í „jafnréttisparadís”? - Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Sara Mansour
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra og Sara Mansour laganemi og aktívisti ræddu nýja bylgju metoo á Íslandi, lagarammann og réttarkerfið sem virðist ekki ná nógu vel utan um kynferðisbrot og ofbeldi í nánum samböndum og hvernig byltingar og hávær umræða hefur áhrif á löggjafann sem þó mætti hreyfa sig hraðar. Meginþungi 32. þáttar var þó á málefni fólks á flótta og frumvarp sem Áslaug Arna ber ábyrgð á, sem mannréttindasinnar eins og Sara Mansour hafa gagnrýnt hástöfum. Sara upplifir orð en ekki gjörðir og finnst vegið að réttindum alls flóttafólks með því að þrengja að heimild og skyldu stjórnvalda til að meta aðstæður fólks. Sara Mansour kallar eftir meiri umræðu um frumvarpið og réttindi fólks sem flýr aðstæður sínar og vonast til þess að löggjafinn taki betur utan um þarfir hælisleitenda og flóttafólks. Áslaug Arna stóð fyrir svörum, sagðist vilja gera vel, vilja bregðast við athugasemdum mannréttindasinna en færði rök fyrir því kerfi sem Ísland gengst undir í málefnum fólks á flótta. Sara og Áslaug Arna voru ekki sammála um margt en þó eitthvað.
Fleiri þættir af Karlmennskan
- 3.19: „Ég mun aldrei kæra aftur“ - Birta Blanco20. september 2026
- 3.18: SUÐ – Svandís Anna Sigurðardóttir (Stígamót)16. júlí 2026
- 3.17: Íslenzka – Iris Edda Nowenstein14. júní 2026
- 3.16: Ekki alltaf glimmer og Pride – Ingibjörg Andrea Hallgrímsdóttir27. maí 2026
- 3:15: Tara Margrét Vilhjálmsdóttir – „Það er enginn heilsukvilli sem hrjáir bara feitt fólk“28. apríl 2026
- 3.14: „Við erum samt ennþá að starfa innan feðraveldisins“ – Þórunn Sveinbjarnardóttir forseti Alþingis12. apríl 2026






