LEGVARPIÐ // Tvíburar og sitjandi fæðing með Evu Sigrúnu
Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Gestur þáttarins er Eva Sigrún Guðjónsdóttir hlaðvarpsstjarna og kvenskörungur með meiru og er hún fyrsti gestur Legvarpsins sem mætir að hljóðnemanum í annað inn. Í fyrri þætti frá 2019 ræddi Eva um "mömmupressuna" en í þetta sinn beinist umræðan að því að ganga með og fæða tvíbura og komast í gegnum fyrstu mánuðina sem tvíburamamma og þriggja barna móðir. Eva segir frá því sem var frábrugðið varðandi líðan og eftirlit á meðgöngunni og fer vel yfir fæðingarsöguna þar sem tvíburi A var í sitjandi stöðu. Við heyrum skemmtilegar sögur að hætti Evu af hennar reynslu og bjargráðum til þess að komast í gegnum daginn með litla tvíbura. Rifinn árshátíðarkjóll, áhrifamikið trúnó í Vesturbæjarlaug, samningaviðræður við iðnaðarmenn í miðri gangsetningu, handsterk afreksíþróttakona og bananakippur á rúmgaflinum. Komiði með!
Fleiri þættir af Landspítali hlaðvarp
- Legvarpið // Trans fólk og barneignir með Alexander9. febrúar 2026
- LEGVARPIÐ // Anna Eðvaldsdóttir6. maí 2025
- Dagáll læknanemans // Lungnaháþrýstingur1. nóvember 2024
- Dagáll læknanemans // Lungnakrabbamein11. október 2024
- Dagáll læknanemans // Klínísk rökleiðsla - Ungur maður með fyrirferð á hálsi, svitaköst og þyngdartap.4. október 2024
- Dagáll læknanemans // Ofvirkur skjaldkirtiill með Örnu Guðmundsdóttur og Báru Dís Benediktsdóttur28. ágúst 2024


