Lof mér að tala

Hanna og Kristín

Skemmtun

Lof mér að tala eru þættir í boði Hönnu Birgisdóttur og Kristínar Sigrúnar. Þær eru málglaðar vinkonur sem eiga það sameiginlegt að þrífast á athygli annara. Sumir myndu segja að Lof mér að tala fjalli fyrst og fremst um menningu, með sérstaka áherslu á lágmenningu. Hanna og Kristín kryfja fréttir og atburði vikunnar af einstakri nákvæmni og spila jafnvel skemmtileg hljóðbrot með. Aðrir eru hógværari og lýsa Lof mér að tala með þremur en um leið áhrifaríkum orðum: Fresh! Happy! Mex! ‎ Instagram: @lofmeradtala Tiktok: @lofmeradtala

Lof mér að tala: 53. Lof mér að þegja (í bili)

Lof mér að tala: 53. Lof mér að þegja (í bili)

15ágú

Elsku hlustendur, í dag kemur út síðasti þáttur Lof mér að tala í bili. Þetta ferli hefur verið einstaklega gefandi, gæfuríkt og umfram allt skemmtilegt. Það er fyndið að hugsa til þess að eitt lítið samtal á Lebowski bar leiddi til gerð þessarar hlaðvarps- enda erum við hreykin af því að vera eina hlaðvarpið á landinu sem hóf göngu sína á ógeðslegasta bar landsins. Þetta er þó ekki það síðasta af Lof mér að tala. Þegar aðstæður leyfa, lofum við að tala aftur. Við þökkum hlustunina og kveðjum ykkur með bros á vör. - Hanna og Kristín.

Lof mér að tala: 52. Gullbrá og minkarnir þrír

Lof mér að tala: 52. Gullbrá og minkarnir þrír

30júl

Lausaganga minka í Mosfellsdal, berkjöldun í húsgagnaverslun, frábær íslensk kvikmynd og hríðskotarifflar voru meðal viðfangsefna þáttarins. Prettyboychokko hefur fengið nóg en Kristín hefur einnig fengið nóg af ákveðinni hegðun ungmenna í dag. Hanna gefur ekki mikið fyrir umtalaða epík Cristopher Nolans og svo er það stóra spurningin: Hvort erum við að fara til Akureyrar eða til Eyja? Þetta og fleira í nýjasta þætti Lof mér að tala! Þátturinn er í samstarfi við Gluggagæjana.

Lof mér að tala: 51. Sverrir Bergmann og íslenska sauðkindin

Lof mér að tala: 51. Sverrir Bergmann og íslenska sauðkindin

24júl

Stelpurnar fóru um víðan völl í þessum nýjasta þætti Lof mér að tala! Bandóðir frakkar á tjaldsvæði, íslenska sauðkindin að koma sér í háska, Youtuberar og leiðinlegasti úrslitaleikur í sögu HM voru til umræðu í þætti dagsins. Fm95BLÖ, aka óskadrengir þjóðarinnar, halda stórtónleika í AK city um verslunarmannahelgina. Kristín spyr sig hvers vegna allir á Íslandi voru aukaleikarir í The Odyssey og Hanna hneykslast á ókurteisu fólki á tjaldsvæðum. Þetta er m.ö.o einstaklega viðburðaríkur þáttur!

Lof mér að tala: 50. Ein þjóð, margir áhrifavaldar

Lof mér að tala: 50. Ein þjóð, margir áhrifavaldar

16júl

Kristín er lasin og tekur regluleg hóstaköst í gegnum þáttinn sem er gjöf sem gleður. Gummi Kiró er orðinn umboðsmaður áhrifavalda, Taylor Swift gifti sig á fáránlegum stað, Erling Haaland VS. Jude Bellingham átti sér stað (ef þú veist, þá veistu) og systir Gretu Thunberg kemur til sögunnar en hún er vægast sagt áhugaverð týpa. Stelpurnar kíktu í bíó og kryfja það en Kristín vill biðja Magnús Jochum afsökunar. Siggi Stormur ber einn ábyrgð á veðurfari Reykvíkinga en það styttist í sólmyrkvan fræga. Þetta og fleira í #letmetalk

Lof mér að tala: 49. Hatursglæpur í parísarhjóli

Lof mér að tala: 49. Hatursglæpur í parísarhjóli

9júl

Stelpurnar koma sterkar tilbaka eftir hrakfaföll síðasta þáttar! Hatursglæpir við kirkjur, íslensk áhrifavaldapör á samfélagsmiðlum, vafasamur tónlistarsmekkur og íslenskt djammsumar voru meðal umræðuefna þáttarins. Lizzo hatar feitt fólk og gaf út plötu sem heitir Tík. Svo má auðvitað ekki gleyma að drengjakollur Kristrúnar Frostadóttur er allur. Njótið þáttarins!

Lof mér að tala: 48. Sumarsæla á Hard Rock

Lof mér að tala: 48. Sumarsæla á Hard Rock

5júl

Loksins er nýjasti þátturinn kominn í hús (eða það sem er eftir af honum… þetta kemur allt saman í ljós…)Siggi Bond er víst orðinn rasisti, Olivia Rodrigo gaf út tónlist, Trump yfirgaf landið og veitingastaðurinn Hard Rock kemur við sögu, eins og svo oft áður. Kristín skilur ekki HM æðið sem er svoleiðis að tröllríða landanum en Hanna horfði á Hunger Games í fyrsta skiptið og uppgötvaði hamingju í fyrsta sinn. Hvílík gleði.

Lof mér að tala: 47. Bróðir Jakob (feat. Jakob Birgisson)

Lof mér að tala: 47. Bróðir Jakob (feat. Jakob Birgisson)

24jún

Jakob Birgisson, uppistandari og bróðir Hönnu, er gestur í þessum nýjasta þætti af Lof mér að tala. Árshátíð íslensku sumarkonunnar á Þingvöllum, súkkulaðiplata Sólrúnar Diego, óhapp á hvalveiðiskipi og kvíði voru til umræðu. Jakob og Hanna ræða barnæskuna og ýmsa kvilla í fari þeirra beggja. Við förum yfir komandi uppistandssýningar Jakobs um allt land í sumar og heyrum skemmtilegar sögur úr uppistandinu. Ásamt því svarar Jakob spurningum hlustenda! Þið viljið ekki missa af þessum nýjasta þætti LMAT

Lof mér að tala: 46. Hvar er Bjarni Ben?

Lof mér að tala: 46. Hvar er Bjarni Ben?

18jún

Hæ, hó, jibbí jei og jibbí jei! Týpur í útilegum, sósíalísk nöfn, Bjarni Ben og 17. júní voru til umræðu í þessum nýjasta þætti Lof mér að tala. Stelpurnar veltu fyrir sér fáránlegum auglýsingum og Kristín furðar sig á því að sumt fólk virðist elska hundana sína meira en börnin sín. Fréttir vikunnar eru ekki af verri endanum og við heyrum hljóðbrot frá konu sem er í miklu uppáhaldi hjá stelpunum #spennandi! Það er eitthvað fyrir alla í nýjasta þætti Lof mér að tala!

Lof mér að tala: 45. Bíddu, má ekkert lengur?

Lof mér að tala: 45. Bíddu, má ekkert lengur?

10jún

New pod, who dis!? Abby Lee Miller, hundasamfélagið á Facebook, fantasíur ungra karlmanna og Bubbi Morthens eru meðal viðfangsefna þáttarins. Eitt heimsfrægt par sögðu skilið við hvort annað og ástin er tálsýn. Frétt vikunnar er af ógeðslegri kantinum og stelpurnar fara yfir stjörnuspánna, sem virðist vilja Hönnu eitthvað illt. Stelpurnar spyrja sig einnig að því hvers vegna það eru svona margar fallegar konur með ljótum karlmönnum og það er spurning hvort maður eigi að skella sér í bíó og sjá hryllingsmyndina, Obsession. Þetta og meira í nýjasta þætti Lof mér að tala!

Lof mér að tala: 44. Guð blessi Jónas Hallgrímsson

Lof mér að tala: 44. Guð blessi Jónas Hallgrímsson

3jún

LOF MÉR AÐ TALA ER EINS ÁRS! Gleðilegan júní og gleðilegt pride. Það er loksins komið að útskriftar-seasoni á Íslandi og fólk er í stuði! Hanna skrapp til Prag og Kristín fór á Patti Smith tónleikana, eins og allt fágað fólk í Reykjavík. Munnmök á hjólabáti, barir í kjallara, geggjaðar frænkur í veislum, Jónas Hallgrímsson og leiðinlegar íslenskar bíómyndir. Kristín vill vita hvað varð um minnka landsins en Hanna hatar fermingar. Eitthvað fyrir alla semsagt❤️

Þér gæti líka líkað...