Mál málanna - þriðjudagur 3. febrúar 2026
Krísa í konungsríkinu og börn með fitulifur
Hneykslið í Noregi: Krónprinsessan Mette-Marit þarf að svara fyrir náin tölvupóstasamskipti við Jeffrey Epstein á sama tíma og sonur hennar er hnepptur í gæsluvarðhald. Við heyrum í Erlu Friðgeirsdóttur í Osló sem lýsir ástandinu.
Danir snúa baki við Bandaríkjunum: Ný könnun sýnir að 60% Dana líta nú á sinn nánasta bandamann sem andstæðing. Við ræðum um nýja appið sem Danir nota til að sniðganga bandarískar vörur.
Andlát í Vestmannaeyjum: Lögreglan rannsakar andlát á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum. Tveir starfsmenn eru í haldi vegna gruns um ranga lyfjagjöf.
Offita barna og fitulifur: Sláandi tölur frá Barnaspítala Hringsins sýna að börn niður í níu ára aldur eru komin á þyngdarstjórnunarlyf. Magnús Scheving ræðir forvarnir og samfélagslega ábyrgð.
Mál málanna – Samhengið í fréttunum á 15 mínútum.
Fleiri þættir af Mál Málanna
- 7,5% Vextir: „Kristrún, það er ljótt að plata“18. mars 2026
- Long Covid: Eins og að hella vatni yfir tölvu17. mars 2026
- Trump krefst þátttöku bandamanna16. mars 2026
- Vikuuppgjör: Holur, flug og stórtíðindi á fjölmiðlamarkaði13. mars 2026
- Jón Bjarnason: „Sama ESB-fenið og 2009.“12. mars 2026
- Segja íslenska ríkið greiða hundruð milljóna árlega erlendis fyrir aðgerðir sem hægt er að gera hér á landi11. mars 2026
