Marta María býður heim er hlaðvarp þar sem þáttastjórnandi tekur á móti áhugaverðu fólki sem hefur markað spor.

Dorrit Moussaieff viðskiptakona og fyrrverandi eiginkona Ólafs Ragnars Grímssonar hefur átt ævintýralegt lífshlaup og er nú á tímamótum. Í þættinum ræddu þær þegar hún hitti Ólaf Ragnar fyrst, hvernig samband þeirra þróaðist og endaði fyrr á þessu ári. Hún varð ástfangin af Íslandi þegar hún kom fyrst til landsins og er alls ekki skilin við þjóðina þótt hjónabandinu sé lokið. Þessi þáttur er í boði Icelandair, SKINCARELAB í Smáralind, Blue Lagoon Skin Science, Fjallakofinn og Mathilda.

Lukka Pálsdóttir sjúkraþjálfari og einn af eigendum Greenfit býr yfir ákveðinni seiglu sem hefur komið henni á þann stað sem hún er í dag. Lukka hefur átt ótrúlegt lífshlaup en þegar hún fæddist höfðu foreldrar hennar gegnið í gegnum mikinn harm þegar faðir hennar lenti í flugslysi. Í þættinum ræðir Lukka um ástina, ævintýrin, myndkörfulán og fitubrennslupúls en líka Zone 2 sem er það sem flestir eru að tala um þessa dagana. En mæla snjallúrin og hringirnir þetta rétt? Þátturinn er í boði Icelandair, Blue Lagoon Skin Science, SKINCARELAB í Smáralind, Fjallakofans og Mathilda í Kringlunni og Smáralind.

Birgir Jónsson fyrrverandi forstjóri Play er rokkari sem er alltaf til í að hlaupa auka hring til þess að lífið verði allavega 9% skemmtilegra. Í þættinum talar Birgir um lífshlaupið og hjartans mál. Um tíma bjó hann í Rúmeníu og lýsir spillingunni sem þar var á áhrifaríkan hátt. Þótt hann þrífist best í mótvindi þá gengst hann við því að það sé ekki gott að vakna með kvíðahnút í maganum á hverjum degi eins og gerðist síðustu mánuðina hjá Play. Þátturinn er í boði Icelandair, SKINCARELAB í Smáralind, Blue Lagoon Skin Science, Fjallakofans og Mathilda í Smáralind og Kringlunni.

Anna Margrét Björnsson, blaðamaður og upplýsingafulltrúi í Franska sendiráðinu, hefur lengi haft sterkan og persónulegan fatastíl. Svartur hefur alltaf verið í uppáhaldi, ásamt eyeliner og stöku hlébarðamunstri. Langafi hennar var Sveinn Björnsson, fyrsti forseti lýðveldisins, og í þættinum ræðum við meðal annars hvort það hafi haft einhver áhrif á uppvöxt hennar - eða alls engin. Faðir Önnu Margrétar starfaði í utanríkisþjónustunni og var sendiherra um tíma. Hún ólst að hluta til upp í Bretlandi og segist hafa fengið menningarsjokk þegar hún flutti til Íslands. Í þættinum tölum við um fatastíl og tísku, París og London, skinkuvæðinguna og mannasiði Þátturinn er í boði Icelandair, SKINCARELAB í Smáralind, Blue Lagoon Skin Science, Fjallakofans og Mathilda í Smáralind, Kringlunni og mathilda.is.

Kristín Agnarsdóttir grafískur hönnuður býr í Lundúnum. Hún er á kafi inni í framtíðartækni og notaði tæknina til að eignast tvo drengi. Svo notaði hún gervigreindina til þess að skilja við barnsföður sinn. Þegar Kristín sagði föður sínum að hún væri að fara að mæta í þennan þátt þá hló hann upphátt og sagði: „Ætlar þú að ræða allar góðu ákvarðanirnar sem þú hefur tekið á lífsleiðinni" og spurði svo hvort þetta væri heil sería. Í þættinum ætlum við að ræða ástir og örlög, tækni og tísku og fara yfir það hvað er dýrmætt að eiga góðar vinkonur. Þessi þáttur er í boði Icelandair, SKINCARELAB í Smáralind, Blue Lagoon Skin Science, Fjallakofanum og Mathilda í Kringlunni og Smáralind.

Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður er félagslegur einfari sem líður best með sjálfum sér. Hann er einn af þessum mönnum sem tekið er eftir og fer alltaf sínar leiðir hvort sem það er í klæðaburði, lífsstíl eða vinnu. Í þættinum ætlum við að tala um lífshlaupið, gaddavírs peysur, fyrirsætuferilinn, Reykholtsmálið og ástina. Þátturinn er í boði Icelandair, SKINCARELAB í Smáralind og Blue Lagoon Skin Science.

Sigurlín Ívarsdóttir prestur og fjölskylduráðgjafi hefur átt litríka tilveru. Hún var prestur í Bresku biskupakirkjunni í Lundúnum á árunum fyrir hrun þegar eiginmaður hennar starfaði hjá Kaupþingi. Hún segir að útrásárárin hafi einkennst af sukki og ógnað hennar fjölskyldulífi. Í þættinum ræðir Marta María við Sigurlín um lífshlaup hennar, áfallavinnu, tísku og hvað það skipti miklu máli að horfa á raunveruleikann eins og hann er. Og geta svo hlegið að öllu saman og haft gaman. Þessi þáttur er í boði Icelandair, Blue Lagoon Skin Science og SKINCARELAB í Smáralind.

Hrund Gunnsteinsdóttir höfundur InnSæi sagði upp draumastarfinu því hún var ekki að finna sig. Hún segist hafa farið allt of hratt upp metorðastigann sem leiddi til þess að heilsan brást. Við tók uppbyggingarferli sem varð að Prisma-námi sem sló í gegn. Í þættinum ætlum við að tala um lífshlaupið, taugakerfið, InnSæi og hvernig það var að finna ástina í örmum Alfreðs Gíslasonar. Þátturinn er í boði: Icelandair, Blue Lagoon Skin Science og SKINCARELAB í Smáralind.

Inga Dóra Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri hjá Air Greenland er hálf íslensk og hálf grænlensk. Hún fæddist á Íslandi en var á 13 ári þegar fjölskyldan flutti til Grænlands. Hún segist hafa fengið menningarsjokk þegar hún flutti til Qaqortoq og það hafi tekið tíma að aðlagast. Inga Dóra er ekkert blávatn og hefur gengt mörgum áhrifastöðum og tekið virkan þátt í pólitík. Hún var um tíma framkvæmdastjóri Vestnorræna ráðsins. Í dag býr Inga Dóra í Nuuk ásamt fjölskyldu sinni. Í þættinum ætlum við að ræða lífshlaup Ingu Dóru og hvernig það sé að lifa í ótta við það sem gæti gerst ef Bandaríkin myndu yfirtaka Grænland. Þátturinn er í boði: Icelandair, Blue Lagoon Skin Science og SKINCARELAB í Smáralind.

Valgerður Halldórsdóttir félags- og fjölskylduráðgjafi er sérfræðingur í stjúptengslum. Hún fór að hafa áhuga á stjúptengslum þegar hún varð sjálf stjúpmóðir. Hún segir að það þýði ekki neitt að kaupa hús og setja alla undir sama þak og halda að allt muni ganga eins og í sögu. Fólk verði að kynnast og það þýði ekkert að halda bara matarboð. Fólk þurfi að kynnast maður á mann. Tilfinningin að tilheyra skiptir lykilatriði þegar fólk setur saman nýja fjölskyldu. Þátturinn er í boði Icelandair, Blue Lagoon Skin Science, SKINCARELAB í Smáralind og Bílasölu Bjössa, Hólshrauni 5.



