Meginlandið

Evrópuhreyfingin

SamfélagiðLandið

Meginlandið er hlaðvarp Evrópuhreyfingarinnar í stjórn Helgu Völu Helgadóttur og Páls Rafnar Þorsteinssonar. Þau bjóða til sín góðum gestum til að ræða það sem er efst á baugi í Evrópumálum, heima og að heiman.

Meginlandið XXI: Hvar stendur Ísland efnahagslega?

Meginlandið XXI: Hvar stendur Ísland efnahagslega?

16ágú

Ásgeir Brynjar Torfason, doktor í fjármálum og ritstjóri Vísbendingar, svarar spurningum Meginlandsins um efnahagslega stöðu Íslands og hvernig hægt sé að segja á sama tíma að við séum eitt ríkasta land heims og allir hafi það svo gott en jafnframt að hér sé allt í kaldakolum.

Meginlandið XX: Sterkari landsbyggð innan ESB

Meginlandið XX: Sterkari landsbyggð innan ESB

13ágú

Meginlandið í dag fjallar um byggðamál, atvinnumál í dreifðum byggðum, styrkjakerfi og landbúnað. Þau Páll Rafnar og Helga Vala fengu til sín þær Önnu Margréti Guðjónsdóttur, framkvæmdastjóra Evris ráðgjafar sem annast samninga um styrki íslenskra fyrirtækja og stofnana hjá Evrópusambandinu og starfaði áður á skrifstofu sambands sveitarfélaga í Brussel, og Ástu Magnúsdóttur, fv. ráðuneytisstjóra og skrifstofustjóra hjá EFTA. Þær fara yfir sviðið, ræða tækifærin sem felast í nýjum mörkuðum í Evrópu, ekki síst fyrir sprotafyrirtæki um allt land.

Meginlandið XIX: Hafa smáríki rödd innan ESB?

Meginlandið XIX: Hafa smáríki rödd innan ESB?

6ágú

Meginlandið fjallar að þessu sinni um stöðu smáríkja innan ESB. Dr. Baldur Þórhallsson, stjórnmálafræðingur, hefur rannsakað stöðu smáríkja og veit manna best hvernig þeim vegnar innan Evrópusambandsins. Hann segir að Ísland hefði ótvírætt rödd innan sambandsins.

Meginlandið XVIII: Umhverfismál í ESB

Meginlandið XVIII: Umhverfismál í ESB

26júl

Aðalheiður Jóhannsdóttir, prófessor í umhverfis- og auðlindarétti við Háskóla Íslands, er gestur Meginlandsins að þessu sinni. Hún fræðir hlustendur um stöðu umhverfismála innan ESB en sambandið hefur verið leiðandi í umhverfisvernd á heimsvísu.

Meginlandið XVII: BREXIT

Meginlandið XVII: BREXIT

19júl

Hvað varð til þess að meirihluti Breta kaus með útgöngu úr ESB og hvernig vegnar landinu eftir hana? Kristján Guy Burgess alþjóðatjórnmálafræðingur er gestur Meginlandsins að þessu sinni og fjallar um eitt afdrifaríkasta augnablik í sögu ESB - þegar Bretar gengu út úr sambandinu.

Meginlandið XVI: Réttindi neytenda

Meginlandið XVI: Réttindi neytenda

12júl

Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, er gestur Meginlandsins þessa vikuna. Stór hluti af íslenskri neytendalöggjöf er kominn frá ESB og vandséð að réttindi neytenda væru varin ef ekki væri fyrir þátttöku Íslands í EES samstarfinu. Breki fer rækilega yfir þetta í þættinum.

Meginlandið XV: Sjálfstæði Íslandinga með Guðna Th. Jóhannessyni

Meginlandið XV: Sjálfstæði Íslandinga með Guðna Th. Jóhannessyni

5júl

Hr. Guðni Th. Jóhannesson fyrrverandi forseti lýðveldisins er gestur Meginlandsins að þessu sinni. Sjálfstæðið og fullveldið eru helstu umræðuefni þáttarins en Guðni fer rækilega yfir sögu þjóðarinnar þegar kemur að þeim málum, í samhengi við þorskastríðin, Kalda stríðið og þátttöku Íslands í stofnunum á alþjóðavettvangi.

Meginlandið XIV: Sjávarútvegurinn

Meginlandið XIV: Sjávarútvegurinn

28jún

Að þessu sinni siglum við út á fiskimiðin í kringum landið. Gestur þáttarins er Úlfar Hauksson stjórnmálafræðingur og sjómaður, með sérþekkingu á sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins.

Meginlandið XIII: Efnahagsmálin

Meginlandið XIII: Efnahagsmálin

7jún

Meginlandið að þessu sinni er helgað efnahagsmálum og er gestur þáttarins, Guðrún Johnsen, hagfræðingur og prófessor í fjármálum. Við förum yfir nýja skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum, sem unnin var af erlendum sérfræðingum, við spyrjum Guðrúnu út í kosti og galla óstöðugs gjaldmiðils, áhrif krónunnar á stöðu heimila og lítilla og meðalstórra fyrirtækja og síðast en ekki síst spyrjum við Guðrúnu út í það hvort það hafi verið íslenska krónan sem bjargaði okkur út úr hruninu.

Meginlandið XII: Að kíkja í pakkann

Meginlandið XII: Að kíkja í pakkann

31maí

Gestur þáttarins er Dr. Margrét Einarsdóttir prófessor og sérfræðingur í Evrópurétti við Háskólann í Reykjavík. Í þættinum ræða þær Helga Vala saman um það hvernig mögulegur samningur Íslands við Evrópusambandið gæti litið út.

Þér gæti líka líkað...