Morðcastið

Unnur Borgþórsdóttir

GlæpasögurSkemmtun

Morðcastið er podcast þar sem fjallað er um íslensk og erlend sakamál á léttum nótum. Þátturinn kemur út á hverjum fimmtudegi. Til að hafa samband: mordcastid@gmail.com instagram.com/mordcastid twitter.com/mordcastid

Orð dagsins er: Nachos

Góðan daginn þennan fallega fimmtudaginn.   Í þætti dagsins fer Bylgja enn og aftur með okkur í ferðalag til Bandaríkjanna, og í þetta skiptið segir hún okkur frá manni sem finnst látinn í uppistöðulóni og málið var óleyst í 24 ár. Kannski jafnvel lengur?    Þátturinn er í boði: Nettó, Sassy, Gjafabref.is, Securitas, Forlagsins, Klukkunnar, og BL.   Þolandi: Frank Weiss Gerandi: Lisa Honrud, allavega. Líklega fleiri.

Orð dagsins er: Kex

Góðan og gleðilegan fimmtudaginn. Í þætti dagsins förum við alla leið til Máritíus í brúðkaupsferð. Því miður ekki við Bylgja reyndar, heldur írskt ungt par sem ætlar heldur betur að fagna nýju hjónabandi sínu.  Það fer þó ekki betur en svo að hér fjöllum við um þessa ævintýraferð í þessu ágæta hlaðvarpi, þegar við hefðum frekar kosið að vera að fjalla um gott te og meðlæti með því.  Þáttur dagsins var í boði: Nettó, Happy Hydrate, BL, Sassy, Gjafabref.is, Forlagsins, Klukkunnar og Securitas.  Þolandi: Michaela McAreavey Gerendur: Enginn sakfelldur

Orð dagsins er: Rúgbrauð

Góðan og gleðilegan fimmtudaginn Með bakpoka og keyrandi um á appelsínugulu rúgbrauði ákveður ungt par að ferðast og njóta lífsins allt þar til að lífið tekur snarpa u-beygju mitt í óbyggðum Ástralíu. Þáttur dagsins var í boði: Nettó, Sassy, Gjafabref.is, Securitas, Forlagsins, Klukkunnar og BL Þolandi: Peter Falconio Gerandi: Bradley John Murdoch

Orð dagsins er: Heilaþvottur

Góðan daginn þennan fallega fimmtudaginn. Í dag erum við enn á ný í Bandaríkjunum, og í þetta skiptið erum við í McKeesport í Pennsylvaníu. Unglingsstelpu líður ekki frábærlega á heimili sínu svo hún bregður á það ráð að flýja það ítrekað, alveg þar til einhver maður tekur á móti henni með opinn faðm og heimili. Sem er reyndar í rauninni fangelsi, en hún komst ekki að því fyrr en aðeins of seint. Því miður! Þáttur dagsins er í boði Securitas, BL, Nettó, Happy Hydrate, Fulltingi, Sassy, Gjafabréf.is og Forlagsins.  Þolandi: Tanya Nicole Kach Gerendur: Thomas John Hose og Judith „Judy" Sokol

Orð dagsins er: Pabbar

Góðan daginn þennan fallega fimmtudaginn. Í dag fer Bylgja  með okkur til Sydney. Ekki Ástralíu samt, heldur Sydney í Nova Scotia í Kanada. Þar er sautján ára strákur stunginn í almenningsgarði og lögreglan er ótrúlega fljót að finna sökudólginn. Kannski aðeins of fljót.  Þátturinn er í boði Sassy, Securitas, Gjafabref.is, Happy Hydrate, Nettó, Fulltingi og BL. Þolandi: Sandy Seale (og smá Junior)  Gerandi: Roy Ebsary

Bókacastið X Morðcastið X Bókastund

Í þætti dagsins lesum við ásamt Bókaklúbbi þjóðarinnar, bókina Tilfinningar eru fyrir aumingja eftir Kamillu Einarsdóttur. Allt í samstarfi við Bókastund og Miðstöð íslenskra bókmennta.

Orð dagsins er: Moldvarpa

Góðan daginn þennan fallega fimmtudaginn. Í dag fer Unnur með okkur í ferðalag til Bandaríkjanna. Ferðalag sem við höfum farið í margoft, en það sem er óhefðbundið í dag er að mikið af málinu á sér stað undir mold og plexigleri. Algjörlega stórfurðulegt mál sem endar þó óvenju vel, svona miðað við þetta hlaðvarp allavega. Þáttur dagsins er í boði BL, Securitas, Nettó, Happy Hydrate, Fulltingi, Gjafabréf.is og Sassy.  Þolandi: Barbara Jane Mackle Gerandi: Gary Steven Krist og Ruth Eisemann-Schier.

Orð dagsins er: Nestisbox

Góðan daginn, fimmtudaginn! Í þætti dagsins fer Bylgja með okkur alla leið til Hong Kong og segir frá hinni huggulegustu fjölskyldu, foreldrum og tveimur sonum, sem hafa átt hið huggulegasta líf. Það höldum við allavega en framvinda málsins lætur okkur sannarlega efast um það. Gríðarlega margar undarlegar u-beygjur eiga sér allavega stað, og enn fleiri undarleg innkaup og ákvarðanir. Þátturinn er í boði Nettó, Securitas, BL, Fulltingi, Happy Hydrate, Sassy og Gjafabréf.is Gerandi: Henry Chau og Angus Tse Chun-kei Þolendur: Chau Wing-ki (Glory Chau) og Siu Yuet-yee (Moon Siu) Fyrir óklipptan þátt eða áskriftarþátt þá mælum við með að kíkja inná www.pardus.is/mordcastid

Orð dagsins er: Grandeur

Góðan daginn, fimmtudaginn! Í þætti dagsins fer Unnur með okkur alla leiðina til Suður-Kóreu og segir okkur frá hópi vondra manna (og í smá einnar konu) sem hefði alveg getað tekið mjög margar frábærar ákvarðanir en tók í staðinn alltof margar hræðilegar ákvarðanir.  Þáttur dagsins er í boði Happy Hydrate, Gjafabref.is, Nettó, Sassy, BL, Fulltingi og Securitas. Gerendur: Kim Gi-hwan, Kim Hyun-yang, Kang Dong-un, Baek Byung-ok, Kang Moon-sub, Song Bung-un og Lee Kyung-sook. Þolendur: Frænka vinar Kim Gi-hwan, Miss Choi, Song Bong-un, Lee Jeong-su, hjónin herra So og frú Park, og Lee. Óklipptan þátt, sjónvarpsþátt og áskriftarþætti má finna inná www.pardus.is/mordcastid

Bókacastið X Morðcastið - Áður en ég brjálast

Í þessum þætti ræðum við systur bókina Áður en ég brjálast eftir Soffíu Bjarnadóttur.

Þér gæti líka líkað...