NÁVÍGI (S02/E01) Akranes
Nýtt hlaðvarp á gömlum grunni! Kominn er í loftið nýr og brakandi ferskur þáttur af Návígi- vel virtu hlaðvarpi sem fyrst leit dagsins ljós árið 2018.
Umsjónarmaður, sem fyrr, er Gunnlaugur Jónsson en í þessari seríu er honum til halds og trausts, Hjörtur Hjartarson.
Sú sería sem er á leið á öldur ljósvakans er einskonar hliðarverkefni frá sjónvarpsþáttaseríunni, A&B sem nýverið var sýnd á Stöð 2 og sló heldur betur í gegn. Í það minnsta var það upphaflega konseptið. Það stækkaði hinsvegar og fór í margar óvæntar áttir. Meira um það síðar. Fyrsti þátturinn heitir Akranes.
Þar er farið um víðan völl og saga ÍA, Akraness, tvíburanna og meðreiðarsveina rifjuð upp. Við heyrum í fjölmörgum kempum sem færa okkur 20, 30 og jafnvel 40 ár aftur í tímann.
N1 - ASKJA - LANDSBANKINN - IKEA
Fleiri þættir af Návígi
- ÁSKORUN (S02/E10)24. júlí 2025
- Hilmar Björnsson (S02/E09)17. júlí 2025
- Þóra Tómasdóttir - Helga Lára safnstjóri RÚV - Þórhallur Gunnarsson (S02/E08)10. júlí 2025
- Freyr Árnason (S02/E07)4. júlí 2025
- Garðar Örn & Siggi Már (S02/E06)26. júní 2025
- NÁVÍGI (S02/E05) Arnar Gull vs Óskar Hrafn (ballið byrjar)19. júní 2025






