Ólafssynir í Undralandi

Útvarp 101

Skemmtun

Í Undralandi Ólafssona er allt morandi í kanínuholum. Aron og Arnar reyna að tipla á tánum í kringum þær en eiga það til annað slagið að falla ofan í þær með tilheyrandi pælingum og vitleysu. Í Undralandi eru þó ekki einungis kanínuholur heldur líka fullt af glensi og meðþví!

Aron sér drauga vol.2

Já vitleysan heldur áfram. Aron sér drauga og nú í annað sinn er það gert að sérstöku umræðuefni. Aroni áskotnaðist EMF-mæli og draugaútvarp í í liðinni viku og endaði í myrkum kjallara Aðventukirkjunnar með eldrauðan mæli. Hlustun er sögu ríkari í þætti dagsins. Verið góð hvort við annað.  Samstarfsaðilar þáttarins eru: Teya: https://www.teya.com/is/ Serrano: https://serrano.is/ Happatreyjur: https://happatreyjur.is/ Reykjavík Foto: https://reykjavikfoto.is/ Umræðuefni: 0:00 Nýtt intro og konur 3:55 Draugamælir á tökustað 6:26 Kjallari Aðventukirkjunnar 13:05 Drengurinn á Hallveigarstíg 17:54 Pabbi Arons á línunni 30:13 Serrano og Happatreyjur 31:52 Hvað mæla draugamælar? 37:43 Leitin að reimdu húsi 43:57 RKV Foto og Teya 49:10 Axlar-Björn og Spánverjavígin 53:53 GTA 6 og Erla 1:00:52 Peysurnar koma

Framtíðin er framhjáhald

https://undra.land/ "Framtíðin er framhjáld" kann að stinga ykkur í augun, kæru hlustendur en framtíðin gæti heldur betur ráðist af einu framhjáhaldi. Forstjóri stærsta fyrirtækis heims féll í slíkan pitt þegar hann féll fyrir kínverskum njósnara sem gæti hæglega endað með heimsstyrjöld, að mati okkar. Líklega hefur eitt framhjáhald aldrei vegið þyngra, a.m.k. ekki frá dögum Troju. Í þættinum er farið yfir Nvidia-hneykslið, hvernig CIA ræður til sín fólk og njósnara sem bíða í 25 ár eftir einu símtali. Neyðarbæklingur Almannavarna fær líka sinn skerf, enda hvetur ríkið fólk til að eiga reiðufé sem það tekur svo ekki við sjálft. Svo er leikjasíðan okkar loksins komin í loftið, aðeins seinna en til stóð vegna gubbupestar hjá Arnari. Arnar er líklega líka litblindur. Mælum með hlustun á þennan. Elskum ykkur öll. https://undra.land/ Samstarfsaðilar þáttarins eru: Teya: https://www.teya.com/is/ Serrano: https://serrano.is/ Happatreyjur: https://happatreyjur.is/ Reykjavík Foto: https://reykjavikfoto.is/ Umræðuefni: 0:00 Gubbupest í fjölskyldunni 4:41 Leikjasíðan opnar 11:51 Nvidia-hneykslið 20:11 Heimsókn til Meta 29:26 Var hún njósnari? 36:55 Leyndarmál CIA 42:06 Njósnarar í dvala 46:45 Getur framhjáhald kveikt stríð? 48:43 Neyðarbæklingurinn 54:08 Teya og peysurnar 56:31 Er Arnar litblindur? 1:01:09 Framtíðin er framhjáhald

Pressure is a privilege

Það er margt á dagskránni þennan sunnudaginn hjá Ólafssonum, kæru vinir. Það er eiginlega ekki fræðilegur möguleiki að hægt sé að telja það upp hér. Þið verðið bara að hlusta - og hlustið vel. Við elskum ykkur öll.

Komum Neó heim!

Þáttur dagsins er af óundirbúnu tagi, enda leiddi könnunin góða í ljós að þið saknið slíkra þátta. Þessir þættir hafa tilhneygingu til þess að fara um víðan völl og þar ætti þessi þáttur ekki að gefa neitt ekkert eftir. Svo er stór tilkynning handan við hornið! Munið það bara að vera góð hvort við annað og munið einnig það kæru hlustendur, að við elskum ykkur öll. Samstarfsaðilar þáttarins eru: Teya: https://www.teya.com/is/ Serrano: https://serrano.is/ Happatreyjur: https://happatreyjur.is/ Reykjavík Foto: https://reykjavikfoto.is/ 0:00 Leyndarmál í vinnslu 6:27 Halloween eða öskudagur 11:36 Serrano og Happatreyjur 15:08 Óundirbúnir á ný 20:15 Lækning við öldrun 28:10 Vélmenni á heimilið 35:13 Gervigreindin á hugsanir okkar 41:07 Agentinn hans Tony Robbins 50:54 Teya og RKV Foto 54:59 Kúr og litla skeiðin 1:02:28 Börnin fara sjálf út 1:08:38 Þrýstingur og demantar

Við erum öll á leiðinni á bætur

Já kæru Undralendingar nær og fjær. Spotify bannaði okkur að nota Kiss From a Rose, en tæplega 400 ykkar svöruðu könnuninni sem bætir það upp. Umræðuefni dagsins eru borgaralaun (UBI) og eins og venjulega fóru Ólafssynir um víðan völl, allt frá samsæriskenningum um Covid yfir í mennska heila í sullkeri og tvo bræður á Ísafirði sem urðu milljónamæringar á því að lána skúrana sína. Spá þáttarins: borgaralaun fyrir 2035. Farið með það á koddan. Samstarfsaðilar þáttarins eru: Teya: https://www.teya.com/is/ Serrano: https://serrano.is/ Happatreyjur: https://happatreyjur.is/ Reykjavík Foto: https://reykjavikfoto.is/ 0:00 Bannaðir á Spotify 3:29 Niðurstöður könnunarinnar 11:49 Serrano-vinningshafinn dreginn 18:50 Hvað eru borgaralaun? 22:57 Covid-samsærið 36:00 Ríkið eða tæknirisarnir? 42:09 Nvidia, álið og Kerecis 59:05 Jóladagatal Happatreyja 1:07:10 Aftur að borgaralaunum 1:13:17 Gefa peningar tilgang? 1:22:58 Neuralink 1:34:26 Spá þáttarins

Ungur að eilífu

Já kæru Undralendingar, þá er komið að þriðja þætti seinni hálfleiks hjá okkur Ólafssonum. Í þætti dagsins förum við um víðan völl, allt frá eilífu lífi og Teslu sem keyrir á hvolfi yfir í þunglynd dýr og dauða internetsins. 56 mínútur af heilavíkkun kæru vinir. Verið góð hvort við annað! Samstarfsaðilar þáttarins eru: Teya: https://www.teya.com/is/ Serrano: https://serrano.is/ Happatreyjur: https://happatreyjur.is/ Reykjavík Foto: https://reykjavikfoto.is/ Umræðuefni: 0:00 Söngur og live show 4:40 RKV Foto og Teya 7:54 Veislustjórn og nýtt lén 10:03 UBI kynnt til leiks 11:29 Lyf gegn öldrun 17:10 Fljúgandi bíll frá Teslu 21:23 Verða dýr þunglynd? 28:32 Laxveiði og fiskadráp 35:33 Leikhús, Serrano og Happatreyjur 41:25 Er internetið dautt? 46:18 Ef mannkynið deyr út 53:30 UBI bíður og lokaorð

Ungur að eilífu

Já kæru Undralendingar, þá er komið að þriðja þætti seinni hálfleiks hjá okkur Ólafssonum. Í þætti dagsins förum við um víðan völl, allt frá eilífu lífi og Teslu sem keyrir á hvolfi yfir í þunglynd dýr og dauða internetsins. 56 mínútur af heilavíkkun kæru vinir. Verið góð hvort við annað! Samstarfsaðilar þáttarins eru: Teya: https://www.teya.com/is/ Serrano: https://serrano.is/ Happatreyjur: https://happatreyjur.is/ Reykjavík Foto: https://reykjavikfoto.is/ Umræðuefni: 0:00 Söngur og live show 4:40 RKV Foto og Teya 7:54 Veislustjórn og nýtt lén 10:03 UBI kynnt til leiks 11:29 Lyf gegn öldrun 17:10 Fljúgandi bíll frá Teslu 21:23 Verða dýr þunglynd? 28:32 Laxveiði og fiskadráp 35:33 Leikhús, Serrano og Happatreyjur 41:25 Er internetið dautt? 46:18 Ef mannkynið deyr út 53:30 UBI bíður og lokaorð

Margt leynist í regnskóginum

Já kæru Undralendingar. Í þætti dagsins fylgjast Ólafssynir með svaðilför Ash Dykes, sem lagður er af stað niður Kongó á uppblásnum kajak, og fara yfir allt sem gæti mögulega drepið hann sem er mjög margt. Svo eru pælingar um frumbyggja og glataða þekkingu og hvort Aron sé í alvörunni handlaginn. Einnig kemur í ljós að einhver braust inn í bíl og stal engu nema Undralandspeysunni. Verið góð hvort við annað. Samstarfsaðilar þáttarins eru: Teya: https://www.teya.com/is/ Serrano: https://serrano.is/ Happatreyjur: https://happatreyjur.is/ Reykjavík Foto: https://reykjavikfoto.is/ Umræðuefni: 0:00 Seal og könnunin 3:41 Undralandspeysan 8:52 Reykjavík Foto og Happatreyjur 12:59 Pabbi Arons smíðaði stúdíóið 16:14 Slettur og umsagnir 19:39 Ash Dykes í Kongó 23:24 Hættulegustu dýrin 27:35 Frumbyggjar 43:52 Teya og Serrano 48:22 Hvar er Daniel? 53:21 Glötuð þekking 1:03:08 Lísa og gervigreindin

WE ARE SO BACK

Kæru vinir. Ólafssynir eru mættir til leiks á ný eftir rúmlega eins árs pásu, nú með látum, í hljóði og mynd!  Samstarfsaðilar þáttarins eru: Teya: https://www.teya.com/is/ Serrano: https://serrano.is/ Happatreyjur: https://happatreyjur.is/

Jólaspecial (ft. Steindi Jr., Stjörnu-Sævar & Teboðið)

Kæru Undralendingar! Við Ólafssynir ákváðum að snúa aftur í tilefni jólanna þó svo að innihaldið sé nú ekkert sérstaklega jólalegt! Við fengum frábæra gesti með okkur í lið og úr varð 2 og hálfur tími af Undralandi. Góða hlustun og gleðileg jól!

Þér gæti líka líkað...