Daglegt mál 20 – Þegar Guðni sagði „læks“
Guðni Kolbeinsson sagði „læks“ í stað hins hefðbundna „lækjar“ í eignarfalli orðsins lækur, í útvarpsþættinum Daglegu máli árið 1980. Sá þáttur hefur ekki varðveist en við heyrum annan þátt í umsjón Guðna þar sem lækur kemur óbeint við sögu; og rifjum upp hvað var skrifað um Guðna-málið svokallaða á síðum blaðanna.