Margvíslegar merkingar orðsins mót
Sumarið er tími hvers kyns móta. Haldin eru íþróttamót, skátamót, héraðsmót og þannig mætti lengi teljs.
Orðið mót getur verið af ýmsum orðflokkum og haft mismunandi merkingarlegt hlutverk innan hvers þeirra. Það kemur á óvart að orð sem lætur svona lítið yfir sér skuli vera svona fjölhæft.