Skuggar - Hluti 1
https://solvitryggva.is/
Skuggar segir frá örlagaríkum tímum í lífi Sölva Tryggvasonar. Ósönn slúðursaga, þar sem hann var ranglega bendlaður við svívirðilegan glæp, fór á flug á samfélagsmiðlum og fjölmiðlar hentu hana á lofti. Við tók hvirfilbylur samfélagsumræðunnar sem jókst enn með tilkynningu um að konur hefðu kært Sölva til lögreglu. Á einni viku fór hann frá hápunkti ferils síns yfir í að missa mannorð sitt og lífsviðurværi. Fallið var hátt, Sölva var útskúfað úr samfélaginu og lagði á flótta út í lönd. Það ferðalag var ekki síður inn á við þar sem hann reyndi að skilja hvað hefði gerst og brá um leið ljósi á sína dýpstu skugga, myrkur og áföll. Sölvi leiðir lesandann með sér í þetta afdrifaríka ferðalag þar sem hann snýr öllum steinum við til að reyna að skilja hvernig þetta allt gat gerst, veltir samfélagsumræðunni fyrir sér og þætti fjölmiðla. Skuggar er uppgjör Sölva við sjálfan sig og samfélagið allt.
Þátturinn er í boði;
Caveman - https://www.caveman.global/
Nings - https://nings.is/
Myntkaup - https://myntkaup.is/
Biofit - https://biofit.is/
Fleiri þættir af Podcast með Sölva Tryggva
- Sigurður Árni með Sölva Tryggva6. október 2026
- #464 Þór Guðna með Sölva Tryggva (Áskriftarþáttur)5. október 2026
- Gamalt og gott: Dóri DNA með Sölva Tryggva2. október 2026
- Gamalt og gott: Höddi Magg með Sölva Tryggva1. október 2026
- Þórarinn Ævars með Sölva Tryggva29. september 2026
- #463 Ragnar Agnarsson með Sölva Tryggva28. september 2026
