#28 Kjartan Guðbrandsson með Sölva Tryggva
Kjartan Guðbrandsson einkaþjálfari er líklega eini Íslendingurinn sem hefur sigrað keppnir í kraftlyftingum, vaxtarækt aflraunum og fitness. Hann byrjaði að æfa með Jóni Páli Sigmarssyni, margföldum sterkasta manni heims, sem unglingur og var með honum á æfingunni þegar Jón Páll lét lífið. Kjartan fékk á því tímabili sinn skammt af dauðanum, þar sem hann missti fleiri nána vini og son sinn á aðeins nokkrum mánuðum. Kjartan hefur upplifað hluti sem eru lyginni líkastir, eins og tímabilið þegar hann þjálfaði einn ríkasta mann Grikklands. Þeir hittu kraftaverkafólk, keyrðu um Evrópu á Lamborghini og leituðu að geimskipum með leynisamtökum. Hér ræðir Sölvi við Kjartan um þetta magnaða lífshlaup, leiðirnar til að finna sátt og hamingju og margt fleira.
Þátturinn er í boði Sjónlags - www.sjonlag.is
Þáttastjórnandi - Sölvi Tryggvason (@solvitrygg)
Framleiðandi - KIWI (@kiwistofan)
Hljóð - Eiður Steindórsson (@oathhljod)
Fleiri þættir af Podcast með Sölva Tryggva
- Sigurður Árni með Sölva Tryggva6. október 2026
- #464 Þór Guðna með Sölva Tryggva (Áskriftarþáttur)5. október 2026
- Gamalt og gott: Dóri DNA með Sölva Tryggva2. október 2026
- Gamalt og gott: Höddi Magg með Sölva Tryggva1. október 2026
- Þórarinn Ævars með Sölva Tryggva29. september 2026
- #463 Ragnar Agnarsson með Sölva Tryggva28. september 2026
