88. Að gera erfiðu hlutina

· Heilsa, Menntun

Stundum þegar ég er að þjálfa konurnar mínar fæ ég að heyra að það sé svo erfitt að gera eitthvað. Í mínum huga er það akkúrat ástæðan fyrir því að við eigum að gera hlutina. Mig langar að tala um þetta í dag. Af hverju við eigum að gera erfiða hluti.
Einhverra hluta vegna segjum við okkur stundum að hlutir eigi eftir að verða erfiðir og við látum það draga úr okkur. Eins og við eigum skilið að hafa allt auðvelt. Eins og það sé markmiðið að lifa eins auðveldu lífi og hægt er. En ef þið spáið aðeins í það að þá er maður yfirleitt aldrei með eins góðar tilfinningar eins og þegar maður hefur afrekað eitthvað sem var erfitt, ekki satt?
Það er af því að við þurfum að vaxa og þroskast þegar við gerum eitthvað sem krefst mikils af okkur, þegar við gerum hluti sem reyna á okkur. Ef við erum alltaf að gera auðvelda hluti þá er enginn hvati til að stækka okkur sjálfar, þroska okkur. Ég vil að þú gerir líka erfiðu hlutina, hlustaðu til að læra meira.
 
Fylgdu Lindu á samfélagsmiðlum.
➡️ INSTAGRAM
➡️ FACEBOOK
➡️ TAKTU SKREFIÐ FB GRÚPPA
➡️ HEIMASÍÐA
 
 
✔️LÍFSÞJÁLFASKÓLINN
✔️LMLP PRÓGRAMMIÐ
✔️VIÐSKIPTA MASTERMIND
✔️MASTERCLASS PAKKAR
✔️NÁMSKEIÐ
✔️VÖRUR
✔️MAGASÍNIÐ M/LINDU PÉ (ókeypis)
 
P.s. Ég yrði afar þakklát ef þú tækir þér mínútu til að gefa podcastinu 5 stjörnu meðmæli á ITunes/Apple Podcast. Með því fá fleiri að hlusta á efnið sem ég set hér fram. Fyrirfram þakkir! Smelltu hér til þess.

Podcastið með Lindu Pé

Úr hlaðvarpinu

Podcastið með Lindu Pé

Linda Pétursdóttir

Allir þættir

Fleiri þættir af Podcastið með Lindu Pé