80. Gjaldþrot til velgengni
Ég ræði við þig á persónulegum nótum í þessum þætti þar sem ég opna fyrir lífsreynslu mína tengda því að ganga í gegnum gjaldþrot.
Eftir að hafa nýverið tekið við verðlaunum í Bandaríkjunum fyrir velgengni í viðskiptum langar mig að deila með þér hvernig ég fór frá gjaldþroti til velgengni á aðeins 7 árum. Dögg lífsþjálfi í LMLP spyr mig út í þetta.
Ástæðan fyrir því að ég ákvað að deila þessari sögu hér er með þeirri von að einhverjir hlustendur sem eiga sjálfir við erfiðleika að etja, geti nýtt sér reynslu mína og ráð varðandi það hvernig þú getur náð þér eftir erfiðleika, hverjir svo sem þeir eru og náð þér á betri stað en þú varst á áður.
Ég hef aldrei látið erfiðleika snúast um mig sem manneskju og ég ætla að bjóða þér að nýta þér þá hugsun.
Niðurlæging og skömm eru tilfinningar sem fylgdu mér í langan tíma eftir gjadþrotið en kennari minn í mastersnáminu mínu í lífsþjálfun bað mig um að deila sögu minni og „kenna öllum konum í heiminum" hvernig ég fór að því að snúa lífi mínu frá gjaldþroti til velgengni. Og þetta er fyrsti liðurinn í því.
Gjörðu svo vel.
Fylgdu Lindu á samfélagsmiðlum.
➡️ INSTAGRAM
➡️ FACEBOOK
➡️ TAKTU SKREFIÐ FB GRÚPPA
➡️ HEIMASÍÐA
✔️LÍFSÞJÁLFASKÓLINN
✔️LMLP PRÓGRAMMIÐ
✔️VIÐSKIPTA MASTERMIND
✔️MASTERCLASS PAKKAR
✔️NÁMSKEIÐ
✔️VÖRUR
✔️MAGASÍNIÐ M/LINDU PÉ (ókeypis)
P.s. Ég yrði afar þakklát ef þú tækir þér mínútu til að gefa podcastinu 5 stjörnu meðmæli á ITunes/Apple Podcast. Með því fá fleiri að hlusta á efnið sem ég set hér fram. Fyrirfram þakkir! Smelltu hér til þess.
