Ræðum það...

Andrés Jónsson

Viðskipti

Atvinnulífsspjallþáttur þar sem við fjöllum um efnahagsmál, viðskipti, stjórnun og samskipti frá ýmsum hliðum

#607 Jensen og Ingvar horfnir á braut

Jensen og Ingvar horfnir á braut Í þætti vikunnar fórum við yfir dýrasta orðsporsmál sögunnar hjá NVIDIA og ræddum skipti Ingvars Þóroddssonar úr Viðreisn yfir í Sjálfstæðisflokkinn. Gestir þáttarins eru Björn Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafi og Atli Stefán Yngvason ráðgjafi hjá Koala ráðgjöf. Ræðum það... er í boði Mynstur. ---- Ræðum það... er hlaðvarp Góðra samskipta um viðskipti og atvinnulíf og hefur verið gefið út frá árinu 2020.  Stjórnandi er Andrés Jónsson

#606 "Hæfni ekki náð. Fjólublár - verk í vinnslu"

"Hæfni ekki náð. Fjólublár - verk í vinnslu" Gestir sjötta þáttar í sjöttu seríu af Ræðum það... eru Árni Helgason þingmaður Sjálfstæðisflokksins og Sverrir Páll Einarsson formaður Uppreisnar, ungliðahreyfingar Viðreisnar. Umræða þáttarins er um hvort ríkisstjórnin sé vinsamleg gagnvart framtakssemi eða pro-business Einnig er rætt um leigubremsu, hvort mál séu ekki að koma fram í þinginu og hvort skattar á ferðaþjónustuna séu hækkaðir án fyrirvara eða séu stefna sem legið hafi fyrir lengi. --- Ræðum það... er hlaðvarp Góðra samskipta um viðskipti og atvinnulíf og hefur verið gefið út frá árinu 2020.  Stjórnandi er Andrés Jónsson

#605 Áhrif mállíkana meiri á ferðaþjónustu á Íslandi

Áhrif mállíkana meiri á ferðaþjónustu á Íslandi Gestir eru Daði Guðjónsson hjá Íslandsstofu og Arna Gunnur Ingólfsdóttir hjá Advania. Þá kom Jónas Atli Gunnarsson, yfirhagfræðingur HMS, og ræddi um meint áhrif leigubremsu á framboð á húsnæðismarkaði. Í lok þáttar kom Baldur Thorlacius, framkvæmdastjóri skráninga hjá Kauphöll Íslands og ræddi um íslenska hlutabréfamarkaðinn, sameiningar lífeyrissjóða og fleira. Ræðum það... er í boði Mynstur. ---- Ræðum það... er hlaðvarp Góðra samskipta um viðskipti og atvinnulíf og hefur verið gefið út frá árinu 2020.  Stjórnandi er Andrés Jónsson

#604 Landsvirkjun og brotthvarf Harðar

Í hlaðvarpi vikunnar í Ræðum það… er rætt um arfleifð Harðar Arnarsonar hjá Landsvirkjun, pólitíska og efnahagslega þýðingu fyrirtækisins og þróun stjórnarhátta þar með Höllu Hrund Logadóttur þingmanni Framsóknarflokksins og fyrrum orkumálastjóra og Helga Hjörvar fyrrverandi borgarfulltrúa og þingmanni Samfylkingarinnar sem sat í stjórn Landsvirkjunar til ársins 2006. Einnig fjöllum við um viðbrögðin við spillingarmáli Manchester City í ensku úrvalsdeildini og hvernig eigendur og stjórnendur liðsins hafa nálgast PR-málin með Jóni Kaldal blaðamanni og almannatengslaráðgjafa.

#603 - Hallalaus fjárlög eða hvað? 

Hallalaus fjárlög eða hvað?  Hringborð atvinnulífsins: Við hringborðið í dag eru Ragna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og varaformaður efnahags- og viðskiptanefndar og Árni Helgason þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Við fengum þau til að ræða hvers konar signal ríkisstjórnin sendir með hallalausu fjárlagafrumvarpi og hversu miklar líkur séu í raun á hallalausum ríkisrekstri á næsta ári. Viðtalið: Margréti Ormslev Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Ligo, er í viðtalinu og ræðir nýtingu gervigreindar fyrir innviði eins og fasteignir og frárennslislagnir. Hitamælirinn: Í hitamæli viðskiptalífsins fórum við yfir umræðu um samsetningu eignarhalds fyrirtækja í kauphöll Íslands með Herði Ægissyni, ritstjóra Innherja. Við ræðum hvernig sambúðin milli stórra stofnanafjárfesta og einkafjárfesta þurfi að þróast til að stuðla að meiri veltu og aukinni þátttöku nýrra fjárfesta í kauphöllinni. Eitthvað sem er reyndar líka stórt hagsmunamál almennings. ---- Ræðum það... er hlaðvarp Góðra samskipta og hefur verið gefið út frá árinu 2020. Ræðum það... fjallar vikulega um viðskipti, efnahagsmál og opinbera stefnumörkun. Þetta er snarpt videó-hlaðvarp með puttann á púlsi umræðunnar og nýlegum fréttafyrirsögnum í viðskiptalífinu. Gestir eru forystufólk í atvinnulífinu en líka glöggt fólk með góða innsýn í umræðuefnin sem er ekki tíðir gestir í hlaðvörpum.  Stjórnandi er Andrés Jónsson

#602 - Hvarf sjónvarpsfrétta, sala til Replit og kólnandi byggingamarkaður

Hringborð atvinnulífsins: Við hringborðið í dag eru Kolbeinn Tumi Daðason ritstjóri fréttastofu Sýnar og Kolbeinn Marteinsson ráðgjafi hjá Athygli. Viðtalið: Viktor Margeirsson og Gunnar Kolbeinsson, stofnendur Test 13 voru í viðtali. Hitamælirinn: Í hitamæli viðskiptalífsins ræddum við að þessu sinni byggingamarkaðinn, vexti og hallalaus fjárlög við Jónas Atla Gunnarsson, yfirhagfræðing HMS. Ræðum það... er í boði Mynstur. ---- Ræðum það... er hlaðvarp Góðra samskipta og hefur verið gefið út frá árinu 2020. Ræðum það... er vikulegt videó-hlaðvarp um viðskipti, efnahagsmál og opinbera stefnumörkun. Vandað og uppbyggilegt en líka snarpt og með puttann á púlsi umræðunnar. Stjórnandi er Andrés Jónsson

#601 - Gagnaver, gervigreind og fjárfestingar

NÝ SERÍA - Ræðum það... rúllar af stað af ný. Hringborð atvinnulífsins: Við hringborðið í dag eru Tinna Traustadóttir, framkvæmdastjóri sölu og þjónustu hjá Landsvirkjun, Magnús Bjarnason ráðgjafi og eigandi MAR advisors. Við fengum þau til að ræða sögu íslenska gagnaversiðnaðarins og hvaða frekari tækifæri eru fyrir Íslands á því sviði. Viðtalið: Sylvía Kristín Ólafsdóttir, forstjóri Nova, er í viðtalinu og ræðir nýja strategíu og fjárfestingar Nova. Hitamælirinn: Í hitamæli viðskiptalífsins skyggndumst við inn í umræðuna á bakvið fréttafyrirsagnir vikunnar með Þorsteini Friðriki Halldórssyni, ritstjóra Hluthafans. Ræðum það... verður eftirleiðis vikulegt videó-hlaðvarp um viðskipti, efnahagsmál og opinbera stefnumörkun. Vandað og uppbyggilegt en líka snarpt og með puttann á púlsi umræðunnar. Við munum grípa umræðu sem tengist nýlegum fréttafyrirsögnum í viðskiptalífinu. Gestir verða aðallega forystufólk í atvinnulífinu en líka glöggt fólk með góða innsýn í umræðuefnin sem er ekki tíðir gestir í hlaðvörpum.  ---- Ræðum það... er hlaðvarp Góðra samskipta og hefur verið gefið út frá árinu 2020. Stjórnandi er Andrés Jónsson

#511 Mun gervigreindin dæma okkur?

Mun gervigreindin dæma okkur? Í þessum ellefta þætti 5 seríu spjalla ég um gervigreind við þau Stefán Baxter hjá Snjallgögnum, Thelmu Christel Kristjánsdóttur hjá Jónsbók og Tinna Kára Jóhannesson hjá Wise Tinni er jafnframt fyrrum samstarfsfélagi minn hjá Góðum samskiptum og meðstofnandi Ræðum það... --- Við erum líka á ⁠https://raedumthad.substack.com⁠ - fáið tilkynningar um nýja þætti og meira til. — Ræðum það… er spjallþáttur um atvinnulífið. Þátturinn hefur komið út reglulega frá árinu 2020. Stjórnandi er Andrés Jónsson* (*)Efnistök eru alfarið óháð verkefnum Góðra samskipta á hverjum tíma. Við val á gestum forðumst við alla hagsmunaárekstra.

#510 Er Ísland opið fjárfestum?

Er Ísland opið fjárfestum? Í þætti vikunnar ræða Margrét Ormlev Ásgeirsdóttir, rekstrarráðgjafi hjá Ormslev Advisory og Friðjón Þórðarson, framkvæmdastjóri Qair Ísland, um atvinnustefnuna sem oddvitar ríkisstjórnarflokkanna kynntu á blaðamannafundi á föstudaginn. Bæði hafa þau um árabil haft milligöngu um aðkomu erlendra fjárfesta að orkuuppbyggingu og grænum orkuverkefnum hér á landi og þekkja hversu langt og flókið ferli það getur verið. Tilkynningarskyldan: Þau þekktust ekki fyrir þennan þátt. Við erum líka á https://raedumthad.substack.com - fáið tilkynningar um nýja þætti og meira til. — Ræðum það… er spjallþáttur um atvinnulífið. Þátturinn hefur komið út reglulega frá árinu 2020. Stjórnandi er Andrés Jónsson* (*)Efnistök eru alfarið óháð verkefnum Góðra samskipta á hverjum tíma. Við val á gestum forðumst við alla hagsmunaárekstra.

#509 Kunna íslensk fyrirtæki ekki að selja?

Kunna íslensk fyrirtæki ekki að selja? Hringborð atvinnulífsins: Georg Lúðvíksson framkvæmdastjóri Spesíu og Rakel Guðmundsdóttir, eignarhaldsstjóri Alfa Framtaks ræddu afhverju íslensk fyrirtæki eru aftarlega á merinni þegar kemur að skipulögðu sölustarfi. Hreyfingalistinn - fréttir vikunnar: Þorsteinn Friðrik Halldórsson ritstjóri Hluthafans og Kristinn Árni Lár Hróbjartsson, ráðgjafi ræddu um lokun Brunns á þriðja framtakssjóði sínum, verðhrun skráðra hugbúnaðarfyrirtækja vestan hafs, tilslakanir Seðlabankans varðandi skýrslugerð fjármálafyrirtækja og nýtt frumvarp ríkisstjórnarinnar um að hækka viðmið varðandi kaupauka starfsmanna verðbréfafyrirtækja. ———— Við erum líka á https://raedumthad.substack.com Ræðum það… er spjallþáttur þar sem rætt er um efnahagsmál, viðskipti, stjórnun og samskipti. Þátturinn er í boði Góðra samskipta* og hefur komið út reglulega frá árinu 2020. Stjórnandi er Andrés Jónsson (*)Efnistök hlaðvarpsins eru óháð verkefnum Góðra samskipta á hverjum tíma. Við val á umræðuefnum og gestum þáttarins forðumst við alla hagsmunaárekstra.

Þér gæti líka líkað...