Á vaktinni með innlagnastjórum á Landspítala
Í Samfélaginu í dag förum við á vakt á Flæðisdeild Landspítalans og köfum ofan í flæðið sem er forsenda þess að spítalinn virki - og hefur sjaldan verið þyngra en nú.
Hvað er að frétta af þessum títtnefnda fráflæðisvanda? Hvað gerir starfsfólkið þegar þetta mennska flæði er nánast stopp og hvað gerist þegar stíflurnar bresta?
Við fylgjumst sérstaklega með Kristinu Kötlu Swan og Þórdísi Friðsteinsdóttur, innlagnastjórum sem eru reyndir hjúkrunarfræðingar en líka eins konar lagerstjórar. Þær standa í ströngu allan daginn við að reyna að finna pláss fyrir veikt fólk - með misjöfnum árangri.
Frá þessum sjónarhóli fær spítalinn á sig svolítið verksmiðjukenndan blæ - en samt snýst þetta alltaf um fólk.
Fleiri þættir af Samfélagið
- Sálfæði snúbúa og þvottahús spítalanna26. febrúar 2026
- Reykjavík Grapevine, Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis og May Morris25. febrúar 2026
- Barnaverndarkerfið og ferðaþjónusta í Grænlandi19. febrúar 2026
- Gervigreind forritar gervigreind, virk efri ár og vetrarklippingar18. febrúar 2026
- Ávaxtaflugur, grænlenskur atvinnurekstur og kaffinördismi12. febrúar 2026
- Bitcoin á niðurleið, listnám háskólastigi á Akureyri og fiskiflugan11. febrúar 2026