Mælirinn fullur hjá háskólakennurum, Fundur með börnum frá Grindavík og Oddrúnarmálið
Samkvæmt nýlegri könnun er meira en þriðjungur starfsmanna í háskólum í hættu á kulnun. Nemendafjöldi hefur aukist en kennurum hefur ekki fjölgað að sama skapi, vinnuvikan er löng og stór hluti kennara nýtir frítíma sinn til að sinna rannsóknum og kennslu. Ragna Benedikta Garðarsdóttir, sem situr í stjórn Félags prófessora við ríkisháskóla og Sigrún Ólafsdóttir formaður félagsins ræða þetta við okkur .
Síðar í vikunni ætla Umboðsmaður barna og Grindavíkurbær að halda stóran fund í Laugardalshöll með börnum í Grindavík, heyra þeirra sjónarmið og koma á framfæri við stjórnvöld. Salvör Nordal umboðsmaður barna og Jóhanna Lilja Birgisdóttir yfirsálfræðingur hjá Grindavíkurbæ ræða við okkur um stöðu barna frá Grindavík.
Svo heimsækjum við þjóðskalasafn Íslands, ræðum við Helgu Hlín Bjarnadóttur skjalavörð um Oddrúnarmálið svokallaða.
Fleiri þættir af Samfélagið
- Sálfæði snúbúa og þvottahús spítalanna26. febrúar 2026
- Reykjavík Grapevine, Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis og May Morris25. febrúar 2026
- Barnaverndarkerfið og ferðaþjónusta í Grænlandi19. febrúar 2026
- Gervigreind forritar gervigreind, virk efri ár og vetrarklippingar18. febrúar 2026
- Ávaxtaflugur, grænlenskur atvinnurekstur og kaffinördismi12. febrúar 2026
- Bitcoin á niðurleið, listnám háskólastigi á Akureyri og fiskiflugan11. febrúar 2026