Ívar Örn Hansen - helvítis kokkurinn

· Menning, Samfélagið, Málefni, Landið

Ívar Örn Hansen betur þekktur sem Helvítis kokkurinn er gestur Viktoríu Hermannsdóttur í dag. Ívar var ungur þegar hann fékk áhuga á matargerð. Hann var varaður við af læknum að hann myndi fá hjartaáfall ef hann tæki sig ekki á og það reyndist rétt. Fyrir nokkrum árum tók hann ákvörðun um að láta á það reyna að vinna fyrir sjálfan sig og er í dag einkakokkur fyrir ríka ferðamenn meðal annars. Hann framleiðir líka sultur undir nafninu Helvítis. Við kynnumst Ívari betur í þætti dagsins.

Fleiri þættir af Segðu mér með Viktoríu Hermannsdóttur