Ólafur Egilsson leikstjóri og leikari
?Ég sagði bara: Þú sérð hvernig ég lít út, þetta er ekkert að fara að ganga,? rifjar Ólafur Egill Egilsson leikstjóri og leikari upp um samtal sem hann átti við skólastjóra Leiklistarskólans. Frá því hann sótti um og þar til hann fékk inngöngu hafði hann misst allt hár og þótti víst að hann ætti ekki erindi í skólann vegna þess.
Ólafur Egill Egilsson leikstjóri og leikari smitaðist snemma og nokkuð illa að eigin sögn af leikhúsbakteríunni svokölluðu. Aðeins eins og hálfs árs lék hann sitt fyrsta hlutverk, í sjónvarpsmyndinni Silfurtúnglið - og efnistökin voru ekki léttvæg. ?Það er barn sem deyr og ég lék það barn. Mjög dramatískt hlutverk,? segir Ólafur sposkur. Hann var gestur Sigurlaugar Margrétar Jónasdóttur í þættinum Segðu mér á Rás 1 þar sem hann ræddi um uppvöxtinn, leikhúsið, kvikmyndalífið og bakteríuna skæðu sem hefur lifað með honum frá blautu barnsbeini.
Fleiri þættir af Segðu mér
- Karl Kristján Youze og Arnaldur Máni Finnsson5. október 2026
- Karl Kristján Youze og Arnaldur Máni Finnsson5. október 2026
- Rögnvaldur Ólafsson aðstoðaryfirlögregluþjónn1. október 2026
- Íris Björk Gunnarsdóttir óperusöngkona30. september 2026
- Íris Björk Gunnarsdóttir óperusöngkona30. september 2026
- Hafsteinn Þórólfsson og Vera Hjördís Matsdóttir söngvarar29. september 2026