Sjöan

Sjöan

Samfélagið

Sjöan er fótboltahlaðvarp Jóhanns Berg Guðmundssonar og Harðar Snævars Jónssonar. Jóhann Berg er fyrrum landsliðsmaður Íslands með yfir 100 A-leiki og hefur spilað meðal annars með AZ, Charlton og Burnley. Hörður Snævar er ritstjóri 433.is og einn þekktasti umræðumaður íslensks fótbolta. Saman fara þeir yfir helstu deildir í evrópu sem og aðrar deildir sem stundum gleymast. Fá íslenska atvinnumenn til að útskýra sína deild, daglegt líf og það sem gerist á og utan vallar. Þegar það á við er stutt stopp heima: Besta deildin og landsliðið. Nafnið kemur af númerinu 7 sem Jóhann Berg hefur borið í áratug. Hlaðvarpið er samt tvíeyki: Jói opnar dyrnar, Hörður heldur umræðunni skarpri. Nýr þáttur vikulega á Spotify, Apple Podcasts og YouTube.

Sjöan - Viðvaningsháttur í Laugardalnum - Takk Aron Einar

Sjöan fer yfir landsleikina, Aron Einar og allt það sem skiptir máli.

Sjöan - Job well done í Búlgaríu og Al Pacino ræða klár til að stoppa Andra

Fórum vel yfir landsleikinn beint eftir 5-0 sigur á Búlgaríu

Sjöan - Síðasti dansinn á Old Trafford og hvað gera umboðsmenn?

Jóhann Berg fór á Old Trafford um liðna helgi þar sem hann sá líklega síðasta leik Michael Carrick með liðið. Við ræðum enska boltann vel, skoðum landsliðið og svo ítarlegt spjall um hlutverk umboðsmanna í heimi fótboltans. Á Instagram síðu okkar er hægt að vinna áritaða treyju frá Bruno Fernandes sem hann notaði í 4-4 jafnteflinu gegn Aston Villa.

Sjöan - Að flýja stríð með fjölskylduna og Andri Lucas gestur

Jóhann Berg er eini Íslendingurinn sem hefur spilað í Sádí Arabíu. Ræðum þann hluta af ferlinum og svo hvernig það er að flýja stríð með fjölskylduna. Andri Lucas Guðjohnsen er svo í mjög áhugaverðu spjalli, er hann næsti íslendingurinn sem fer í ensku úrvalsdeildina?

Sjöan - Gylfi Sig vill alltaf meira og hvað gerist þegar þjálfari er rekinn?

Gylfi Þór mætir í þáttinn og fer yfir allt það helsta. Förum yfir ástandið hjá Manchester United, skoðum Liverpool og ræðum margt fleira. Þjálfaramálin á Íslandi aðeins skoðuð.

Sjöan - Alfreð Finnboga gestur - Toddi gat ráðið Freysa

Alfreð Finnbogason er fyrsti gestur Sjöunnar, hann fer ítarlega yfir málin. Þá er farið yfir enska boltann og aðeins kíkt í þá Bestu. Sjöan er í boði Lengjunnar, Peroni 0,0 prósent og Númereitt.is

Sjöan - Er í lagi að landsliðsmenn helli í sig?

Íslenskir landsliðsmenn gómaðir á barnum, Manchester City og stóri dómur JBG yfir því máli. AskBigBerg og fleira gott í þessum öðrum þætti af Sjöunni.

Sjöan - Skórnir á hilluna

Fyrsti þáttur af Sjöunni - Jóhann Berg Guðmundsson hefur lagt skóna á hilluna. Jóhann mun í vetur fræða íslenskt knattspyrnuáhugafólk um leikinn sem allir elska. 102 landsleikir, spilaði á Íslandi, Hollandi, Englandi og í sandinum.

Þér gæti líka líkað...