#140 Skoðanir MR
MR? Nördar? Lúðar? Kvenhatarar og vændiskonumyrðandi karlmenn? Femínistar? Allt saman, er rétta svarið, virðist vera, enda útilokar ekki annað hitt, en þar með er ekki öll sagan sögð. Þetta er margslungin ofbeldisstofnun sem við gerum hér tæmandi skil í einum þætti (sem má nálgast í heild á Patreon, ef þú ert í hlaðvarpsveitunni þinni að vera lúser). Umræðupunktar: Böll, áfengi, stofulúðar, gangnaslagur, málbreytingar og svo framvegis og svo framvegis.
Persónur og leikendur eru þessir: Þrír MR-ingar á móti einum Verzlingi, Bergþóri Mássyni. MR-ingarnir eru Grímur Smári Hallgrímsson, fæddur 2002 og úr Laugalækjarskóla, Guðrún Sóley Gestsdóttir, fædd 1987 og úr Hagaskóla, og loks Snorri Másson, fæddur 1997 og einnig úr Hagaskóla.
Fleiri þættir af Skoðanabræður
- BM heilagur andi - fyrsti þáttur8. apríl 2026
- #384 Skoðanir Eiríks Magnússonar (Ishmael)1. ágúst 2025
- #383 Skoðanir Agnars Tómasar Möller25. júlí 2025
- #382 Skoðanir Gunnars Jörgens Viggóssonar (Þáttur um greatness)18. júlí 2025
- #381 Skoðanir Joey Christ og Daníels Perez11. júlí 2025
- #380 Skoðanir Kjartans Þórissonar (2/2)4. júlí 2025
