#102 Skoðanir Arons Kristins Jónassonar
Jólasveinar, einn og átta.. Ég er auðvitað ekki að kalla Aron Kristin Jónasson einn af þeim! En það mætti ýmislegt um manninn segja. Til að spara tíma (klukkan er 16.52 á aðfangadag þegar þetta er skrifað) segi ég bara: Hann er Geitin Sjálf, þó að mannanafnanefnd þverskallist við að taka nafnið gilt. Rappari, listamaður, viðskiptasiðfræðingur, sem hér tjáir sig um allt á milli himins og jarðar. Athugið þó að þær skoðanir sem hér koma fram hafa, eins og maðurinn tiltekur sérstaklega af ótta við Æstan Múg Góða Fólksins, ekki lengri líftíma en sem nemur nákvæmlega þessum þætti.
Farið á www.patreon.com/skodanabraedur.
Fleiri þættir af Skoðanabræður
- BM heilagur andi - fyrsti þáttur8. apríl 2026
- #384 Skoðanir Eiríks Magnússonar (Ishmael)1. ágúst 2025
- #383 Skoðanir Agnars Tómasar Möller25. júlí 2025
- #382 Skoðanir Gunnars Jörgens Viggóssonar (Þáttur um greatness)18. júlí 2025
- #381 Skoðanir Joey Christ og Daníels Perez11. júlí 2025
- #380 Skoðanir Kjartans Þórissonar (2/2)4. júlí 2025
