#70 Skoðanir Gunnhildar Fríðu Hallgrímsdóttur og Óskar Elfarsdóttur (nýju stjórnarskrárinnar)
Stærstu mál samtímans... Skoðanabræður gera þeim að sjálfsögðu skil. En það má heita umdeilt hver þau eru nákvæmlega... klámið, grasið og skeggið eða þá „róttækar“ stjórnmálalegar breytingar, sem mætti svo sem vera gæsalappalaus lýsing á þeirri ráðstöfun að setja þjóð nýja stjórnarskrá. Sú hugsjón er helsta ætlunarverk karlmanna vikunnar, Gunnhildar Örnu Hallgrímsdóttur og Óskar Elfarsdóttur, sem eru að vesenast í ríkjandi ástandi með því að dæla út vel heppnuðum áróðri á samfélagsmiðlum og svo sem á götum bæjarins sömuleiðis, en áróðurinn lýtur allur að því að vekja fólk til vitundar um nýju stjórnarskrána, sem var skrifuð árið 2011, kosin árið 2012 og svo hunsuð alla tíð síðan.
Þetta plagg á að vera fært um að breyta samfélaginu mjög til batnaðar, aðeins ef vilji ráðamanna stæði til að færa það í nyt. Það gerir hann ekki, heldur er þetta vandræðabarn hálfgert, því að fólkið vill þetta, en stjórnmálamennirnir ekki. Eða alla vega vinstrisquad.. Skoðanirnar eru að sjálfsögðu skiptar. Fræðist!
Skoðanabræður eru á Útvarpi 101 og þeir þiggja styrki og áskriftir á Patreon, þeim ágæta vettvangi.
Fleiri þættir af Skoðanabræður
- BM heilagur andi - fyrsti þáttur8. apríl 2026
- #384 Skoðanir Eiríks Magnússonar (Ishmael)1. ágúst 2025
- #383 Skoðanir Agnars Tómasar Möller25. júlí 2025
- #382 Skoðanir Gunnars Jörgens Viggóssonar (Þáttur um greatness)18. júlí 2025
- #381 Skoðanir Joey Christ og Daníels Perez11. júlí 2025
- #380 Skoðanir Kjartans Þórissonar (2/2)4. júlí 2025
