#64 Skoðanir Egils Ástráðssonar
Egill Ástráðsson. Sterkt norrænt einnefni eins og bræðralagið vill hafa það. Hann er hinn sterki norræni maður (íslenskur með alskegg) og hefur lengi átt erindi inn í gasklefa Skoðanabræðra þó að hann hafi af ýmsum sökum ekki ratað þangað fyrr en nú. Hann er umboðsmaður, atvinnumaður í veseni og meðal stofnenda Útvarps 101, 101 Studios og 101 Sambandsins og hver veit hvers meira. Allt auðvitað bendlað við hálfbannsett póstnúmer, sem nú hefur þó fengið uppreist æru, eins og Egill segir: „Þetta lattelepjandi 101, mér finnst það alveg búið.“ Orðræðugreining! Meðal sérsviða Skoðanabræðra. Að þessu sinni með fulltingi þessa góða „sæmilega hamingjusama hvíta karlmanns í hamingjusömu parsambandi.“ Og bíðið þar til farið er að ræða um FreeTheNipple.
Skellið ykkur á www.patreon.com/skodanabraedur og djúsinn, hann er að öðru leyti á vegum Útvarps 101.
Fleiri þættir af Skoðanabræður
- BM heilagur andi - fyrsti þáttur8. apríl 2026
- #384 Skoðanir Eiríks Magnússonar (Ishmael)1. ágúst 2025
- #383 Skoðanir Agnars Tómasar Möller25. júlí 2025
- #382 Skoðanir Gunnars Jörgens Viggóssonar (Þáttur um greatness)18. júlí 2025
- #381 Skoðanir Joey Christ og Daníels Perez11. júlí 2025
- #380 Skoðanir Kjartans Þórissonar (2/2)4. júlí 2025
