Breytingar á lögum um tæknifrjóvgun, stjórnarmyndun í Serbíu, breyttur tónn um bandarískan herafla í Evrópu
Endurskoðun á banni við gjöf fósturvísa og kröfu um að einstaklingar sem vilja standa saman að tæknifrjóvgun séu í sambúð eða hjónabandi, er meðal þess sem lagt er til í drögum að breytingum á lögum um tæknifrjóvgun. Einnig á að á að tryggja rétt barna til að þekkja uppruna sinn. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Sigríði Steinunni Auðunsdóttur, sem er í stjórn Tilveru samtaka um ófrjósemi og Ingunni Jónsdóttur, kvensjúkdómalækni hjá Sunnu - frjósemisstofu.
Nýir valdhafar í Serbíu hafa þrjá mánuði til að mynda ríkisstjórn, eftir að þing landsins kom saman . Hundrað og fjörutíu þingmenn Stúdentalistans sóru þar embættiseið og hafa hreinan meirihluta á þinginu, eftir kosningarnar í Serbíu fyrir þremur vikum. Björn Malmquist fjallaði um stöðuna í Serbíu.
Bandarísk stjórnvöld eru sögð hafa dregið í land með fyrirhugaða endurskoðun herafla í Evrópu, sem ætti að liggja fyrir í byrjun næsta mánaðar. Tónninn í málflutningi fulltrúa þeirra hefur breyst frá því í sumar, eins og kom fram í pistli Ingólfs Bjarna Sigfússonar.
Fleiri þættir af Spegillinn
- Rekstur OR, leiðtogafundur í Kína og för Voyager út í óravíddir alheimsins19. nóvember 2026
- Breytingar á lögum um tæknifrjóvgun, stjórnarmyndun í Serbíu, breyttur tónn um bandarískan herafla í Evrópu18. nóvember 2026
- Breytingar á lögum um tæknifrjóvgun, stjórnarmyndun í Serbíu, breyttur tónn um bandarískan herafla í Evrópu18. nóvember 2026
- Útvistun flóttafólks og örlaga þeirra, námsmat á tímum gervigreindar17. nóvember 2026
- Útvistun flóttafólks og örlaga þeirra, námsmat á tímum gervigreindar17. nóvember 2026
- Útvistun flóttafólks og örlaga þeirra, námsmat á tímum gervigreindar17. nóvember 2026