Spurt og svarað

Björn Berg

Samfélagið

Björn Berg ræðir um persónuleg fjármál og peninga á mannamáli. Spurningum hlustenda er svarað og tekur Björn fyrir málefni sem snerta fjárhag okkar með einum eða öðrum hætti. Ýmislegt er til umræðu, svo sem sparnaður, lán, lífeyrir, fjárfestingar og ákvarðanir sem taka þarf í daglegum rekstri heimilisins. Markmið hlaðvarpsins er að bæta fjármalalæsi á Íslandi með því að gera peningamál skýrari og aðgengilegri. Björn Berg Gunnarsson er sjálfstæður fjármálaráðgjafi, fyrirlesari og höfundur bókarinnar Peningar. Ert þú með spurningu fyrir þáttinn? Sendu hana inn hér.

Afkomukvíði, jólasparnaður og dýrasti tölvuleikur allra tíma

Björn Berg ræðir um afkomukvíða vegna jóla, hversu mikið dýrari jólin verða en í fyrra og hvernig draga megi úr útgjöldum. Spurningu hlustanda er svarað, sem hefur áhyggjur af framfærslu sinni á lífeyrisaldri og litið er á ótrúlegar fjárhæðir í tengslum við útgáfu GTA 6, dýrasta tölvuleiks allra tíma. (00:55) Langtímasparnaður: bankareikningur eða verðbréf? (03:50) Afkomukvíði vegna jólanna? (07:40) Hvað kosta jólin í ár? (10:25) Breyttar jólahefðir (16:08) Jólatónleikar og jólahlaðborð: kostnaðurinn getur safnast upp (17:36) Skipuleggðu útgjöldin með jólareiknivélinni (19:04) GTA 6: dýrasta afþreyingarvara allra tíma? (29:09) Spurning frá hlustanda: Hvernig veit ég hvort ég geti hætt að vinna? (38:44) Lífeyrisnámskeið og afsláttarkóði (39:37) Næsti þáttur: svik og netsvindl Jólareiknivél: https://www.bjornberg.is/reiknivelar/jolareiknivel Hagtölur á mannamáli: https://www.bjornberg.is/hagtolur Kynntu þér Spesíu á https://www.spesia.is Sendu þættinum spurningu: https://www.bjornberg.is/spurtogsvarad Stef þáttarins:  Never Ending Night, eftir Morgan Willis. Sjáið meira á https://morganwillismusic.com

Fjárfestingar - 5 algeng mistök og hlutabréfakaup

Björn Berg ræðir ýmsar hliðar fjárfestinga. Rætt er um fimm algeng mistök almennra fjárfesta á hlutabréfamarkði. Hvernig varð Volkswagen verðmætasta fyrirtæki heims? Er betra að ávaxta peninga í sjóði eða á bankabók, þegar litið er á skattalegu hliðina? Af hverju er svona lítið talað um erlenda vísitölusjóði? (01:58) 5 algeng mistök sem einstaklingar gera þegar þeir fjárfesta (10:41) Þegar markaðurinn hagar sér asnalega: Volkswagen og skortsala (18:21) Af hverju fjárfesta ekki allir í S&P 500? (26:23) Frítekjumark eða skattfrestun? Hvort kemur betur úr? (32:22) Lífeyrissjóðir sameinast (36:36) Nýjar reiknivélar og ólíkar leiðir við niðurgreiðslu húsnæðislána Þáttastjórnandi: Björn Berg Gunnarsson Sendu þættinum spurningu: https://bjornberg.is/spurtogsvarad

Útsöludagarnir framundan - Má gefa börnunum sínum peninga?

Páll Kristjánsson, hæstaréttarlögmaður er gestur þáttarins. Hann útskýrir meðal annars muninn á sambúð og hjónabandi þegar keypt er íbúð og hvernig foreldrar mega styrkja börnin sín fjárhagslega. Stóru útsöludagarnir eru framundan og við skoðum sögu þessara daga, hvernig útsölur og afslættir geta aukið við einkaneyslu okkar og hvernig best megi nýta afsláttardagana. Við lítum að lokum á nýjar verðbólgutölur og hvort þær séu jafn jákvæðar og ætla mætti af umræðunni. Taktu þátt og sendu þættinum spurningu á https://www.bjornberg.is/spurtogsvarad Kaflar þáttarins 02:47 Páll Kristjánsson, hrl. 04:13 Hjúskapur og kaupmáli 05:51 Sambúð og kaup á íbúð saman 07:08 Ójafnt eignarhlutfall og afsal 08:26 Slit á sambúð 09:23 Að styrkja börn fjárhagslega 10:02 Gjafir og erfðafjárskattur 11:28 Lán eða skuldabréf frá foreldrum 14:16 Jólaverslun og netverslun 15:12 Dagur einhleypra, svartur föstudagur og stafrænn mánudagur 18:33 Netsvik og varúð í netverslun 21:30 Saga dags einhleypra 23:16 Saga svarts föstudags og stafræns mánudags 25:35 Eru útsöludagar góðir? 27:21 Eru afslættir raunverulegir? 29:23 Hvernig afslættir hafa áhrif á okkur 31:51 Greiðsludreifing og tímapressa 34:02 Afsláttarkóði á vefnámskeið 34:40 Nýjustu verðbólgutölur

Hrekkjavakan - Hræðileg mistök og tekjuhæstu hryllingsmyndirnar

Í sérstökum hrekkjavökuþætti er er rætt um hræðileg mistök sem starfsfólk í fyrirtækjum hefur gert, litið er á tekjuhæstu hryllingstölvuleikina og tekjuhæstu hryllingsmyndirnar sem frumsýndar hafa verið um hrekkjavökuna. Við skoðum útgjöld heimilanna til hrekkjavökunnar í löndunum í kringum okkur auk þess sem innsendri spurningu hlustanda er svarað. Taktu þátt og sendu þættinum spurningu á https://www.bjornberg.is/spurtogsvarad Kaflar 00:00 — Efni þáttarins 01:55 — Hrikaleg mistök í fyrirtækjarekstri 02:09 — Citibank og Revlon: 109 milljarða millifærsla fyrir mistök 05:39 — Starfsmaðurinn sofnaði á lyklaborðinu 08:12 — Alitalia og verðmistök á flugmiðum 08:38 — Klúður Pepsi á Filippseyjum 1992 12:01 — Hrekkjavakan stærri en öskudagurinn á Íslandi 12:30 — Hrekkjavakan á Norðurlöndum: Svíþjóð, Danmörk og Noregur 14:51 — Bandaríkin: 1.600 milljarðar króna og innkaup færast framar í dagatalið 16:37 — Í hvað fer féð: búningar, skreytingar, sælgæti og kort 17:59 — Vinsælustu búningarnir í ár 18:26 — Tekjuhæstu hryllingstölvuleikir allra tíma 21:06 — Spurning frá hlustanda: viðbótarlífeyrissparnaður og tilgreind séreign 25:50 — Bíómyndir: af hverju fréttir um bíógróða eru oft rangar 27:18 — Tekjuhæstu hryllingsmyndirnar um hrekkjavöku

Hvað er að kunna að fara með peninga? Hvert stefnir verðbólgan?

Í þessum fyrsta þætti hlaðvarpsins svarar Björn Berg spurningu sem send var inn. 📈 Rætt er um nýja verðbólguspá og um fermingarpeninga frá árinu 1983 sem fundust inni í hljómborði. Taktu þátt og sendu þættinum spurningu á bjornberg.is/spurtogsvarad Kaflar 00:00 — Nýr þáttur: Spurt og svarað 00:54 — Sendu þættinum spurningu 01:22 — Spurning: Að fara vel með peninga 05:28 — Hvað þýðir að kunna að fara með peninga? 06:27 — Mánaðarmót segja ekki alla söguna 07:21 — Hugarfar og viðhorf í fjármálum 08:16 — Hvernig tökum við fjárhagslegar ákvarðanir? 08:45 — Að græða peninga er ekki það sama og að fara vel með þá 10:15 — Þrjú einkenni fólks sem fer vel með peninga 16:57 — Ný verðbólguspá: Hvað er fram undan? 22:58 — Fermingargjafir frá 1983 og verðgildi peninga

Stikla

Stikla

15sep

Í þættinum Spurt og svarað ræðir Björn Berg um það sem þú þarft að vita um peninga. Spurningum hlustenda er svarað og rætt um hinar ýmsu hliðar fjármála. Sendu inn spurningar og kynntu þér þáttinn á bjornberg.is/spurtogsvarad

Þér gæti líka líkað...