#35 - Marta María, hraðaspurningar, djúsí bransasögur & stríðsöxin grafin

· Samfélagið, Menning & listir

Það er engin önnur en Marta María Winkel fréttastjóri dægurmála hjá Árvakri sem er gestur vikunnar. Marta María kynntist Mayu og Andreu þegar þær unnu saman hjá NTC og það hefur mikið vatn runnið til sjávar síðan þá. 
Marta María er hvað þekktust fyrir að halda úti vinsælasta fréttavef landsins Smartland á mbl.is en hún er einnig með sitt eigið hlaðvarp Marta María býður heim. Hún hefur gefið út fjórar bækur og þar á meðal bókina 100% Nylon sem vann Bókaverðlaun barnanna 2005 ásamt endalausum fleiri áhugaverðum verkefnum sem hún segir okkur frá. 
Marta María er mikill fagurkeri og alveg einstaklega skemmtileg og við mælum með að hlusta á þáttinn en það er farið yfir djúsí bransasögur og farið inná persónulegar nótur samhliða. 
Þátturinn er unninn í samstarfi við:
SPAR
Blue Lagoon Skin Science
Vitamin Well
Mercedes Benz
GIGGÓ
Húðlæknastöðin
Þátturinn er tekinn upp í Klakinn Studio og sér Bryndís Arna Sigurðardóttir um upptöku og framleiðslu.
Sérstakar þakkir fær Þórhallur Gunnarsson

Stílbrot

Úr hlaðvarpinu

Stílbrot

Maya & Andrea

Allir þættir

Fleiri þættir af Stílbrot