05: KENNSLA: Yfir og undirsnúningur merkjanna 12
Hæfileikar og veikleikar eru endar á sömu spýtunni.
Það hljómar kannski einkennilega – svona við fyrstu sýn – að ekki er hægt að hafa hæfileika án samsvarandi veikleika.
Stífni er neikvæða hliðin á aga. Græðgi er neikvæða hliðina á stórhug. Að vera utan við sig, athyglisbrotinn, er neikvæða hliðin á ímyndunarafli. Meðvirkni er neikvæða hliðin á kærleika. Ofverndun neikvæða hliðin á umhyggju, og svo framvegis.
Sem þýðir um leið að ef við búum yfir ákveðnum veikleikum þá er málið að spyrja: Hvar er hæfileikahliðin?
Í stað þess að berjast við og reyna að sigrast á veikleikum þá er málið að snúa spýtunni við.
Orðað á annan hátt: Veikleikar eru hæfileikar á rangri hillu í lífinu. Þegar uppræta á veikleika þá er málið að finna réttu hilluna fyrir viðkomandi eiginleika.
Í þættinum ræðum við um stjörnumerkin tólf útfrá þessum nótum og er hér listi yfir hvenær hvert merki er rætt:
Inngangur 00:00
Sporðdreki 03:10
Krabbi 10:40
Meyja 16:00
Naut 23:25
Tvíburi 26:20
Steingeit 30:10
Hrútur 37:20
Ljónið 43:00
Vogin 49:29
Vatnsberi 54:08
Fiskur 01:02:50
Bogmaður 01:15:10
Fleiri þættir af Stjörnuspeki – Orkugreining
- 108: Loftmerkin – Tvíburinn og Vogin22. september 2026
- 107: Ef allir væru sama merkið / Dolly Parton7. september 2026
- 106 Gestur: Guðni Gunnarsson. Guðníska / Vald orðanna / Að taka ábyrgð á eigin lífi21. ágúst 2026
- 105: Sjálfhverfa / Fullkomnunarárátta / Merkúr í elementum og merkjum12. ágúst 2026
- 104: Niðurspírall, þunglyndi og hvernig einhverfa getur birst í fæðingarkorti.5. ágúst 2026
- 103: Höldum áfram með afstöður. Nú er það Neptúnus og Plútó.21. júlí 2026
