Strand spítalaskipsins Sankti Páls á Meðallandsfjörum árið 1899

· Bókmenntir, Samfélagið

Í þessum þætti ræðir Símon Sverrisson við Jóhönnu Þ. Guðmundsdóttur sagnfræðing og verkefnastjóra heimildaútgáfu á Þjóðskjalasafni Íslands um strand franska spítalaskipsins Sankti Páls.
Sankti Páll var með glæsilegri skipum sem komu á Íslandsmið en það var þrímastra seglskip sem strandaði í sinni þriðju ferð til Íslands árið 1899. 
Hið fagra skip vakti eðlilega mikla athygli þar sem það lá í fjörunni í Meðallandi sem kölluð hefur verið skipakirkjugarður Evrópu. Jóhanna segir frá strandinu, björgun áhafnar og verðmæta, og uppboði strandgóssins sem var óvenju mikið.

Til skjalanna

Úr hlaðvarpinu

Til skjalanna

Hlaðvarp Þjóðskjalasafns Íslands

Allir þættir

Fleiri þættir af Til skjalanna