„Tíðni sjálfsvíga hjá konum er hæst um 60 ára aldur“
Í þessum þætti fékk ég Halldóru Skúladóttur hjá Kvennaráðum til þess að ræða við mig um breytingaskeiðið, mikilvægi hormónauppbótarmeðferðar, streitu, andlega vanlíðan, sjálfsmildi og það hversu mikilvægt fyrir konur á miðjum aldri er að huga að réttu mataræði og hreyfingu.






