Tvöfalt morð í Neskaupstað 2024 – 1. hluti [HEILL ÞÁTTUR]

· Samfélagið, Glæpasögur

Fyrri hluti af tveimur er opinn öllum. Seinni hlutinn er í áskrift hjá True crime Ísland. Áskrift kostar 1.290 kr. á mánuði og þú skráir þig á tci.kratos.is.
Í 55. þætti True Crime Ísland fjöllum við um eitt alvarlegasta sakamál sem hefur komið upp á undanförnum árum, tvöfalt morð í Neskaupstað. Þann 22. ágúst 2024 barst Neyðarlínunni tilkynning um veikindi á heimili þar eystra en þegar að var komið reyndust hjón látin á heimili sínu. Maður sem dvalið hafði hjá þeim síðustu daga var þá horfinn á bifreið þeirra og var handtekinn í miðborg Reykjavíkur um einum og hálfum tíma síðar.
Í þessum fyrri hluta rekjum við atburðarásina frá útkalli og handtöku, hvernig lögregla og sérsveit tryggðu vettvanginn og þá umfangsmiklu réttartæknilegu rannsókn sem fylgdi. Við förum yfir blóðferlagreiningu, skóför, eftirlitsmyndavélar sem vörpuðu ljósi á tímalínuna, niðurstöður réttarkrufningar og DNA-greiningar frá Svíþjóð, allt það sem lögregla studdist við til að endurgera hvað raunverulega gerðist inni á heimilinu.

True crime Ísland

Úr hlaðvarpinu

True crime Ísland

True Crime Ísland

Allir þættir

Fleiri þættir af True crime Ísland