Undirmannaðar

Undirmannaðar

SamfélagiðSkemmtunForeldrarKrakkar

Þrjár tvíburamæður með munnræpu. Deilum reynslu okkar á tvíburum ásamt því að fá til okkar frábæra viðmælendur sem allir eiga það sameiginlegt að vera foreldrar.

169. Undirmannaðar - Álfrún Perla

Viðmælandi vikunnar er hún Álfrún Perla! Álfrún er tveggja barna móðir, stjórnmálafræðingur, frumkvöðull og alþjóðarfulltrúi hjá KLAK. Við ræddum meðal annars um móðurhlutverkið, nám erlendis, starf hennar hjá utanríkisráðuneytinu, m.a. á herstöð NATO í Bandaríkjunum og Afganistan, fyrirtækjarekstur og fjölskyldulífið í Bandaríkjunum. Álfrún er mikil jólakona og er annar eigandi Jólaálfsins. Þátturinn er í samstarfi við: 🌱 Nettó & Änglamark 💜 Kristall+ 💫 Smáralind 💙 Sjóvá 🔑 Félag lykilmanna 🩵 Landsbankinn 🧸 Kids-World 💚 Lyfjaval 💦 Happy Hydrate

168. Undirmannaðar - Angelia Fjóla

Viðmælandi vikunnar er hún Angelia Fjóla! Angelia er tveggja barna móðir, kennari og uppeldisfræðingur. Við ræddum meðal annars um móðurhlutverkið, uppeldi, áföll, taugakerfið, stjörnuspeki og allt það sem fylgir því að vera mamma. Hún er höfundur bókarinnar Þegar hugurinn fer að blómstra. Þátturinn er í samstarfi við: 🌱 Nettó & Änglamark 💜 Kristall+ 💫 Smáralind 💙 Sjóvá 🔑 Félag lykilmanna 🩵 Landsbankinn 🧸 Kids-World 💚 Lyfjaval

167. Undirmannaðar - Thelma Rut Svansdóttir

Viðmælandi vikunnar er Thelma Rut Svansdóttir, tveggja barna móðir og mikil áhugakona um næringu og heilsu. Thelma og Kristinn hafa farið í gegnum alvöru rússíbana á leiðinni að því að verða ófrísk og Thelma segir okkur frá því á einlægan og opinskáan hátt. Við spjöllum líka um mikilvægi þess að hugsa vel um sig, næringu og hreyfingu fyrir líkama og sál. Evrópska vitundarvikan um ófrjósemi er 2.–8. nóvember og okkur langar að vekja athygli á henni❤️ Þátturinn er í samstarfi við: 🌱 Nettó & Änglamark 💜 Kristall+ 💫 Smáralind 💙 Sjóvá 🔑 Félag lykilmanna 🩵 Landsbankinn 🧸 Kids-World 💚 Lyfjaval

166. Undirmannaðar - Sif Þórisdóttir

Viðmælandi vikunnar er Sif Þórisdóttir, tveggja barna móðir. Í þættinum ræðum við uppvaxtarárin, hvernig hún kynntist manninum sínum, barneignirnar og fæðingar drengjanna þeirra tveggja. Annar strákurinn þeirra er með frumgreiningu á einhverfu og ræðir Sif af einlægni þær áskoranir sem þau hafa staðið frammi fyrir, alla þá biðlista og hindranir sem foreldrar standa frammi fyrir. Fyrir áhugasama um þættina Stelpurnar er frábær leiksigur frá Sif í lok þáttar. Þátturinn er í samstarfi við: 🌱 Nettó & Änglamark 💫 Smáralind 💙 Sjóvá 🔑 Félag lykilmanna 🧸 Kids-World 💚 Lyfjaval 💦 Happy Hydrate

165. Undirmannaðar - Lilja Kristín Guðjónsdóttir

Viðmælandi vikunnar er Lilja Kristín Guðjónsdóttir – tveggja barna móðir, ljósmóðir og utanvegahlaupari. 🏃🏼‍♀️Við förum með Lilju í gegnum uppvaxtarárin, meðgöngurnar og fæðingarnar, og fáum að heyra hvernig hún tókst á við ljósmóðurnámið samhliða móðurhlutverkinu og fetaði sig alla leið inn í draumastarfið. Við spjöllum líka um hreyfingu, utanvegahlaup og fleira. 🏃🏼‍♀️ Þátturinn er í samstarfi við: 🌱 Nettó & Änglamark 💫 Smáralind 💙 Sjóvá 🔑 Félag lykilmanna 🧸 Kids-World 💚 Lyfjaval

164. Undirmannaðar - Rakel Sif

Viðmælandi vikunnar er Rakel Sif, tveggja barna móðir, tvíburi og hjúkrunarfræðingur. Við fórum yfir hvernig það er að vera tvíburi, lífið með tvö börn og alvarlegt fæðingarþunglyndi. Rakel opnaði sig um allt og mikilvægi þess að þekkja einkennin bæði fyrir konur sjálfar og aðstandendur. Þátturinn er í samstarfi við: 🌱 Nettó & Änglamark 💫 Smáralind 💙 Sjóvá 🔑 Félag lykilmanna 🧸 Kids-World 💚 Lyfjaval 💦 Happy Hydrate

163. Undirmannaðar - Arna Barkar

Viðmælandi vikunnar er Arna Barkar, þriggja barna móðir og meðeigandi heildsölunnar Cosmetics.Í þessum þætti ræðum við uppvaxtarárin, meðgöngurnar og ólíkar fæðingar barnanna þriggja. Arna segir okkur á mjög einlægan og kraftmikinn hátt frá þeim gríðarlega stóru áskorunum sem fjölskyldan stóð frammi fyrir þegar hún greindist með brjóstakrabbamein á sama tíma og móðir hennar var með lungnakrabbamein. Við viljum vekja athygli á Bleikum október og hvetja ykkur til að kynna ykkur þau málefni og samtök sem styðja við bakið á konum sem greinst hafa með krabbamein <3 Þátturinn er í samstarfi við: 🌱 Nettó & Änglamark 💫 Smáralind 💙 Sjóvá 🔑 Félag lykilmanna 🧸 Kids-World 💚 Lyfjaval

162. Undirmannaðar - Anna Marta og Lovísa

Þátturinn er í samstarfi við: 🌱 Nettó & Änglamark 💫 Smáralind 💙 Sjóvá 🔑 Félag lykilmanna 🧸 Kids-World 💚 Lyfjaval 💦 Happy Hydrate

161. Undirmannaðar - Sóley Kristjáns

Viðmælandi vikunnar er Sóley Kristjáns, móður, grínisti og áhugakona um Breytó.Við áttum skemmtilegt spjall við Sóley um lífið og tilveruna, hvernig var að alast upp í Svíþjóð, hvernig það er að finna sjálfan sig og fuck it modeið, móðurhlutverkið og svo alvara lífsins: Breytó. Sóley heldur úti hlaðvarpinu🎙️ Að finna taktinn sem fjallar um breytingarskeiðið og áttum við spjall um breytingarskeiðið, einkennin og hvað það er mikilvægt að hlusta á líkamann og þekkja sjálfan sig. Stór punktur í Breytó er t.d. að það er gott að lyfta lóðumℹ️ Þátturinn er í samstarfi við: 🌱 Nettó & Änglamark 💫 Smáralind 💙 Sjóvá 🔑 Félag lykilmanna 🧸 Kids-World 💚 Lyfjaval

160. Undirmannaðar - Vilborg

Viðmælandi vikunnar er Vilborg, fjögurra barna móðir, vægast sagt undirmönnuð! Í þættinum ræðum við hvað það er magnað hvað meðgöngur og fæðingar geta verið ólíkar, hvernig það er að vera með stutt á milli barna, skilnað á meðgöngu, að finna aftur ástina og lífið og tilveruna í dag. Þátturinn er í samstarfi við: 🌱 Nettó & Änglamark 💫 Smáralind 💙 Sjóvá 🔑 Félag lykilmanna 🧸 Kids-World 💚 Lyfjaval 💦 Happy Hydrate

Þér gæti líka líkað...