Bjarni Fritzson S1 E5
Ég hringdi í Bjarna eldsnemma og hann var í banastuði eins og alltaf. Bjarni segir okkur sína vendipunkta í lífinu, og útskýrir fyrir okkur þegar hann fékk símtalið sem gerði það að verkum að hann er nú í framboði. Af hverju valdi hann 8. sætið? Hann svarar því einnig og útskýrir það vel.
Orri óstöðvandi fær frí næstu jól í fyrsta sinn í 8 ár, og skúbbar Bjarni af hverju og hvað það er sem hann er að skrifa.
Hér heyrir þú það fyrst!
Bjarni er baráttumaður, virkjandi rödd fyrir börn,unglinga og fullorðna og björt og geislandi viðbót í pólítíkina á Íslandi. Ég persónulega held að hann nái kjöri af því að...
Sendu mér póst á asgeirpodcast@gmail.com og komdu með hugmynd að næsta viðmælanda, eða bjóddu þig fram í að taka þátt að vera með í Vendipunktinum.
Takk fyrir að hlusta á Vendipunktinn sem er nú í góðu samstarfi með Akureyri.net!
